Frá hestum til hestafla

Frá hestum til hestafla er þriðja bók Bjarna Guðmundssonar á Hvanneyri. Hinar fyrri, . . . og svo kom Ferguson og Alltaf er Farmall fremstur, hafa notið mikillar hylli, enda rekur höfundur sögu íslensks samfélags út frá framvindu í landbúnaði á fróðlegan og skemmtilegan hátt, að ógleymdu frábæru myndefni.

Í þessari bók segir Bjarni sögur af vinnuhestum og hestanotkun við bústörf, fyrstu dráttarvélinni sem til Íslands kom – Akranesstraktornum svonefnda, Lanz-þúfnabananum og loks af landbúnaðarjeppunum, Willys og Land Rover. Þá rifja átta einstaklingar upp minningar sínar frá þessum breytingatímum.

Bjarni Guðmundsson hefur verið óþreytandi við að afla heimilda og gagna um hvaðeina sem varðar þessa framvindu, sem er drjúgur þáttur íslensks samfélags alla tuttugustu öld. Þá er ótalið hið ómetanlega myndefni sem hann hefur viðað að sér víða að og er órjúfanlegur þáttur bóka hans. Síðast en ekki síst er Bjarni listagóður penni og segir þessa merku sögu á einkar lifandi og oft bráðskemmtilegan hátt.
Bókin er gefin út í samstarfi við Landbúnaðarsafn Íslands og er 250 blaðsíður í veglegu broti.
Bókin mun koma út haustið 2013. Þeir sem kaupa í forsölu fá bókina senda heim um leið og hún kemur úr prentun, áður en hún fer í almenna dreifingu og sölu.

Háskóli Íslands

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image