Búfræðingar og háskólaútskriftanemar 2018
Brautskráning nemenda af garðyrkjubrautum við Landbúnaðarháskóla Íslands fór fram í Hveragerðiskirkju 26. maí sl. Alls var 21 nemandi brautskráður, sjö luku bóklegum hluta í garðyrkjuframleiðslu en námið er þannig upp sett að nemandi klárar tvö ár bókleg á Reykjum í Ölfusi og tekur svo verklegt nám innan greinarinnar. Níu nemendur luku bóklegu námi í skrúðgarðyrkju og fimm útskrifuðust sem skrúðgarðyrkjufræðingar en það nám er löggild iðngrein.
Við athöfnina söng Einar Clausen tvö lög við undirleik Jóns Kristófers Arnarsonar.
Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ, og Guðríður Helgadóttir, forstöðumaður starfs- og endurmenntunardeildar og staðarhaldari á Reykjum fluttu ávörp og óskuðu nemendum til hamingju með daginn.
Í garðyrkjuframleiðslu hlutu þrír nemendur viðurkenningu. Þröstur Þórsson hlaut viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á garð- og skógarplöntulínu með 9,61. Íris Grétarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir hæstu einkunn af línu lífrænnar ræktunar matjurta með einkunnina 9,59. Í ylræktun var Ingvari Þorsteinssyni færð viðurkenning fyrir bestan árangur með einkunnina 9,20.
Jóhann Böðvar Skúlason fékk viðurkenningu fyrir hæstu meðaleinkunn útskrifaðra nema úr bóklegu og verklegu námi á skrúðgarðyrkjubraut en meðaleinkunn hans var 8,6. Helle Laks fékk viðurkenningu fyrir hæstu einkunn úr bóklegu skrúðgarðyrkjunámi eða 9,75. Hún var einnig dúx skólans að þessu sinni.
-----
Brautskráning nemenda á búfræðibraut og á háskólabrautum Landbúnaðarháskóla Íslands fór í Hjálmakletti í Borgarnesi 1. júní. Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ, flutti ræðu og óskaði nemendum velfarnaðar í framtíðinni. Jóhannes Torfason bóndi á Torfalæk II, tækifærisræðumaður Öndvegisdeildar - 50 ára búfræðikandídata hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnema 1968.
Tónlistaratriði voru í höndum þeirra Evu Margrétar Jónudóttur og Ágústar Gests Guðbjargarsonar útskriftarnema 2018. Um undirleik sáu þau Anna Sólrún Kolbeinsdóttir og Jón S. Snorri Bergsson. Myndir tók Auður Ósk Sigurþórsdóttir.
Alls útskrifuðust 28 nemendur af búfræðibraut. Rebekka Rún Helgadóttir dúxaði á búfræðiprófi með einkunnina 9,13. Hún hlaut jafnframt viðurkenningu fyrir góðan árangur í sauðfjárrækt sem og nautgriparækt.
Elvar Friðriksson hlaut verðlaun fyrir góðan árangur í bútæknigreinum og góðan árangur í hagfræðigreinum. Hann fékk einnig verðlaun fyrir frábæran árangur fyrir lokaverkefni á búfræðiprófi. Jóhannes Geir Gunnarsson hlaut verðlaun fyrir góðan árangur í námsdvöl.
Þá var einnig útskrifað á háskólabrautum. 12 nemendur útskrifuðust með BS próf í búvísindum. Verðlaun fyrir góðan árangur á B.S. prófi á búvísindum hlaut Bjarni Sævarsson með einkunnina 9,12.
Fjórir nemendur luku BS prófi í náttúru- og umhverfisfræði. Julia Carolina Bos hlaut verðlaun fyrir frábæran námsárangur á BS prófi á brautinni með einkunnina 9,23.
Fjórir nemendur luku BS prófi á skógfræði- og landgræðslu. Jakob Wayne Robertson hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á landgræðslulínu og Sigríður Hrefna Pálsdóttir hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á BS prófi á skógfræðilínu. Sigríður hlaut einnig verðlaun fyrir góðan árangur í námskeiðinu plöntunotkun.
Þá útskrifuðust sjö nemendur með BS próf í Umhverfisskipulagi. Esther Thaagaard Andreasen hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á BS prófi á brautinni sem og fyrir góðan árangur í skipulagsfögum.
Julia Carolina Bos hlaut verðlaun fyrir frábæran árangur fyrir lokaverkefni á BS prófi með einkunina 9,4 sem og verðlaun fyrir bestan árangur á BS prófi við LbhÍ með einkunnina 9,23 .
Þrír nemendur luku M.S. prófi í rannsóknartengdu einstaklingsmiðuðu meistaranámi, Guðríður Baldvinsdóttir lauk prófi í skógfræði, Gunnar Reynisson í hestafræði og Jón Hjalti Eiríksson lauk prófi í búvísindum og hlaut hann jafnframt verðlaun fyrir frábæran árangur á MS próf við LbhÍ með einkunnina 9,44.
Einn nemandi lauk MS próf í skipulagsfræðum, Þórður Már Sigfússon, og hlaut hann viðurkenningu frá Skipulagsfræðingafélagi Íslands.
----
Á degi íslenska hestsins 1. maí sl. útskrifuðust 24 nemendur af námskeiðaröðinni Reiðmaðurinn í endurmenntunardeild LbhÍ.
----
Starfsfólk Landbúnaðarháskóla Íslands óskar öllum brautskráningarnemum 2018 til hamingju með daginn og þakkar þeim góð kynni. Jafnframt þökkum við gefendum viðurkenninga, þeirra framlag.