Brautarstjóri í garðyrkjuframleiðslu

Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan starfsmann til að stýra námsbraut í garðyrkjuframleiðslu við Starfs- og endurmenntunardeild Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi.

Garðyrkjuframleiðsla er tveggja ára nám á framhaldsskólastigi með námslok á hæfniþrepi þrjú. Markmið garðyrkjuframleiðslunáms er að auka þekkingu og færni einstaklingsins til að takast á við framleiðslu garðyrkjuafurða í gróðurhúsum og utanhúss. Áhersla er einnig lögð á hvers kyns nýsköpun í framleiðslu og nýtingu landsins gæða með sjálfbærni að leiðarljósi.

Um er að ræða fullt starf sem felur m.a. í sér faglega umsjón með brautinni, miðlun þekkingar með bóklegum og verklegum hætti, umsjón með verknámi nemenda, samskipti við hagsmunaaðila og samstarfsaðila. Starfsstöð brautarstjóra garðyrkjuframleiðslu er á Reykjum í Ölfusi. 

Viðkomandi þarf að vera menntaður garðyrkjufræðingur með framhaldsnám á sviði gróðurhúsatækni og garðyrkjuframleiðslu eða sambærilega menntun auk verulegrar reynslu af garðyrkjuframleiðslu.

Viðkomandi þarf að hafa víðtæka þekkingu á gróðurhúsatækni og framleiðslu garðyrkjuafurða með mismunandi aðferðum, einkum og sér í lagi í ylrækt.

Mikilvægir eiginleikar í starfinu eru m.a. frumkvæði, faglegur metnaður, skipulagshæfileikar og samskiptahæfni, auk ríks vilja til að vinna með dugmiklu fólki í skapandi umhverfi. 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðríður Helgadóttir (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.) í síma 8435314.

Umsóknarfrestur er til 18. júní nk. og gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf þann 1. ágúst. Umsóknir skulu sendar til Landbúnaðarháskóla Íslands b/t Örnu Garðarsdóttir  Ásgarði, Hvanneyri 311 Borgarnes eða á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image