
Landbúnaðarháskóli Íslands boðar til síns árlega fundar miðvikudaginn 20. maí næstkomandi. Fundurinn fer fram í húsakynnum skólans að Keldnaholti og er öllum opinn.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir samstarfsaðila, nemendur og áhugafólk um landbúnað, lífvísindi, skipulag og menntun til að fá innsýn í starfsemi skólans, nýjungar í námsframboði og framtíðarsýn stofnunarinnar.
Dagskrá fundarins
Húsið opnar með morgunkaffi kl. 8:30 og fundurinn hefst formlega kl. 9:00.
• 09:00 |Setning fundar
• 09:05 | Árið 2025 hjá LBHÍ: Ragnheiður Þórarinsdóttir, rektor, fer yfir helstu verkefni og rekstur síðasta árs.
• 09:20 | Ársreikningur: Theodóra Ragnarsdóttir, rekstrarstjóri.
• 09:30 | Ávarp: Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna.
• 09:45 | Áherslur í námi og kennslu: Jón Grétar Sigurjónsson, kennsluforseti, kynnir innleiðingu örnáms við skólann.
• 10:00 | Nám í dýralækningum: Charlotta Oddsdóttir, dýralæknir og gestalektor, kynnir nýjan samstarfssamning LBHÍ og SGGW (Póllandi).
• 10:15 | Hestafræði og tamningar: Sigríður Björnsdóttir, prófessor, kynnir nýtt diplómanám í tamningum.
• 10:30 | Fundarlok
Hvar: Keldnaholt
Hvenær: Miðvikudaginn 20. maí
Tími: 08:30 – 10:30
Aðgangur: Ókeypis og allir velkomnir!
Við hvetjum sem flesta til að mæta, kynna sér blómlegt starf skólans og eiga góðar samræður yfir kaffibolla.
Hlökkum til að sjá ykkur!