Albína Hulda með fyrirlestur að Hnjóti
14.08.2018

Albína Hulda Pálsdóttir, dýrabeinafornleifafræðingur hjá LbhÍ, mun næstkomandi laugardag, þann 4. ágúst kl 15:00 halda erindi á Minjasafni Egils Ólafssonar að Hnjóti við Örlygshöfn.
Hvað geta dýrabein frá víkingaöld sagt okkur um sögu sauðkindarinnar? Hvað er dýrabeinafornleifafræði? Hvernig má þekkja í sundur bein kinda- og geita?Hvaðan er íslenska sauðkindin eiginlega komin?
Einnig má koma með bein sem hafa fundist á víðavangi til greiningar.
Skemmtilegur viðburður fyrir alla fjölskylduna - sjá nánar á Facebook hér https://www.facebook.com/events/213500499334754/