• Forsíða
  • Rannsóknarverkefni
  • Aðstoð við myndun lífrænnar jarðvegsskánar (BIOCRUST, lífskurn) við endurheimt vistkerfa
Aðstoð við myndun lífrænnar jarðvegsskánar (BIOCRUST, lífskurn) við endurheimt vistkerfa
18.03.2026
Mynd sem tengist textanum

Lífræn jarðvegsskán (lífskurn) er samfélag ólíkra lífvera á yfirborði og í efstu mm jarðvegs, sem getur

gegnt mikilvægu hlutverki við endurheimt raskaðra vistkerfa. Lífskurn sem myndast eftir áburðargjöf við uppgræðslu raskaðs lands eykur stöðugleika jarðvegsyfirborðisins og stuðlar að landnámi margra innlendra plöntutegunda á landgræðslusvæðum, þar á meðal birkis og víðitegunda. Inngrip sem stuðla að myndun lífskurnar hafa því mikla þýðingu fyrir endurheimt birkiskóga og annarra þurrlendisvistkerfa. Hins vegar er ekki vitað hvaða gerðir lífskurnar myndast eða er mögulegt að mynda með inngripum við þær aðstæður, hvaða aðferðir eru árangursríkastar við það og hvaða eiginleikar lífskurnarinnar skipta mestu við endurheimt vistkerfa.

Munum við: (1) gera kerfisbundna leit og greiningu á heimildum um notkun tilbúnnar lífskurnar við

endurheimt vistkerfa í köldu umhverfi (vinnupakki 1, WP1); (2) lýsa ítarlega tilbúinni lífskurn á þremur mismunandi svæðum með DNA greininga (WPs 2 og 3); og (3) byggja upp getu hjá LbhÍ og

samstarfsaðilum til að útbúa og meta þróun lífskurnar við endurheimt vistkerfa, bæði á smáum skala við stýrðar aðstæður og á landgræðslusvæðum (WP4 og WP5).

Tengiliðir

Alejandro Salazar Villegas

Dósent

[email protected]
Mynd sem tengist textanumMynd sem tengist textanumMynd sem tengist textanum