Mynd sem tengist textanum

MS gráða 120 ECTS

Búvísindi

Meistaranám í Búvísindum er rannsóknarmiðað meistaranám. Markmið þess er að veita einstaklingsbundna menntun og þjálfun í búvísindum.

Meistaranám í Búvísindum

Sækja um

Kjörsviðið Sjálfbær landbúnaður og byggðaþróun er námskeiðsmiðað

Öflugur sjálfbær landbúnaður í sátt við umhverfi og samfélag er ein af grunnstoðum þróunar samfélaga um allan heim, ekki síst með tilliti til fæðuöryggis og byggðaþróunar. Meistaranám í Búvísindum með kjörsviðið Sjálfbær landbúnaður og byggðaþróun býður upp á nám sem fyrir einstaklinga sem vilja auka við þekkingu sína á breiðum grundvell landbúnaðarvísinda, umhverfisvísinda, nýsköpunar, hagvísinda, stefnumótunar og þróun byggða. Komið er inná fjölmörg þemu í kjörsviðinu svo sem landbúnaðarkerfi og framleiðslu, fæðukerfi og fæðuöryggi, stefnu og stuðning stjórnvalda þar með talið stjórnkerfi og stjórntæki hins opinbera, hagsæld og hringrásarhagkerfi, loftslagsbreytingar, byggðaþróun, nýsköpun í dreifbýli og landnýtingu – allt í samhengi við sjálfbærni.

Námið er kennt í þverfaglegu samstarfi við Háskóla Íslands, og fer kennsla skyldunámskeiða fram í staðnámi bæði á Hvanneyri og í Reykjavík. Vegna samstarfsins hafa nemendur möguleika á því að velja námskeið úr báðum háskólum, sem og þvert á deildir háskólanna umfram þær 40 ECTS einingar sem fela í sér skyldunámskeið. Umfang rannsóknarverkefnis gerir nemendum svo kleift að móta námið að sínu áhugasviði.

Umsjónarmaður framhaldsnáms er Jón Grétar Sigurjónsson

Nánari upplýsingar má nálgast hjá [email protected]

Mynd sem tengist textanum

2025-2026

Námsskrá