Við leitum að verkefnisstjóra í Endurmenntun og kennara í hestafræði

Verkefnastjóri í Endurmenntun LbhÍ og kennari í hestafræðum

Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir því að ráða verkefnastjóra í Endurmenntun sem jafnframt kemur að kennslu í hestafræðum. Um er að ræða fullt starf. 

Helstu verkefni og ábyrgð 

  • Umsjón með námskeiðsframboði, námsgögnum og skipulagi í samstarfi við endurmenntunarstjóra 
  • Þróun og uppbygging námskeiðsframboðs einkum á sviði reiðmennsku og hestafræða 
  • Samskipti og miðlun upplýsinga til kennara og nemenda 
  • Samskipti við helstu hagsmunaaðila innan og utan skólans 
  • Undirbúningur og umsýsla námskeiða 
  • Þróun námskeiða og kennsla í hestafræði og tengdum greinum við endurmenntun og aðrar deildir LbhÍ 
  • Önnur tilfallandi verkefni 

Hæfniskröfur 

  • Háskólapróf í reiðkennslu/tamningum og reynsla af þjálfun hrossa 
  • Reynsla af verkefnastjórnun 
  • Reynsla af kennslu og fullorðinsfræðslu 
  • Góð tölvukunnátta 
  • Geta til að vinna sjálfstætt og sem hluti af hóp 
  • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum 

Frekari upplýsingar um starfið 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Starfshlutfall er 100% 

Umsóknarfrestur er til og með 19.04.2022 

Nánari upplýsingar veitir 

  • Guðmunda Smáradóttir, Mannauðs- og gæðastjóri LbhÍ - This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - 433 5000 

Smelltu hér til að sækja um starfið 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image