• Forsíða
  • Fréttir
  • Úthlutun úr Minningarsjóði Hjartar Snorrasonar og Ragnheiðar Torfadóttur 2025
Úthlutun úr Minningarsjóði Hjartar Snorrasonar og Ragnheiðar Torfadóttur 2025
18.06.2025
Úthlutun úr Minningarsjóði Hjartar Snorrasonar og Ragnheiðar Torfadóttur 2025

Við brautskráningu frá Landbúnaðarháskóla Íslands hinn 6. júní sl. var úthlutað úr Minningarsjóði Hjartar Snorrasonar og Ragnheiðar Torfadóttur. Sjóðurinn var stofnaður til minningar um Hjört Snorrason og Ragnheiði Torfadóttur skólastjórahjón á Hvanneyri af sonum þeirra á 75 ára afmæli Hvanneyrarskólans árið 1964.

Sjóðurinn veitir árlega verðlaun við brautskráningu búfræðinga og að þessu sinni var það Kristín Ólafsdóttir sem hlaut viðurkenningu sjóðsins fyrir góðan árangur í námsdvöl. Auk þess hlaut Kristín verðlaun Bændasamtaka Íslands fyrir frábæran árangur á búfræðiprófi, verðlaun Búnaðarsamtaka Vesturlands fyrir góðan árangur í hagfræðigreinum og verðlaun RML fyrir góðan árangur í búfjárræktargreinum.

Við óskum Kristínu innilega til hamingju með árangurinn.