Tálgun orðin hluti af list- og verkgreinakennslu

Um helgina var haldið Lesið í skóginn námskeið á vegum Landbúnaðarháskólans í samvinnu við Skógræktina.  Þessi námskeið hafa verið haldin frá því Guðmundur Magnússon á Flúðum og Ólafur Oddsson þá kynningarfulltrúi Skógræktarinnar héldu fyrsta námskeiðið 1999 í Haukadalsskógi en Guðmundur kynntist tálgutækninni sem kennd er á Lesið í skóginn námskeiðunum á endurmenntunarnámskeiði hjá sænska heimilisiðnaðarfélaginu í Dalarna nokkru áður. 

 

Háskóli Íslands

 

Þessi tálgutækni er ekki kennd í nágrannalöndum okkar en hér á landi hefur tæknin náð meiri og meiri útbreiðslu eftir því sem hún er kennd víðar og fleiri tileinka sér hana í starfi. Það er t.d. orðið áberandi hvað margir hafa af því atvinnu að tálga gripi sem seldir eru sem minjagripir s.s. fuglar, fígúrur og íslensku dýrin og að tálgun er orðin hluti af list- og verkgreinakennslu í skólastarfi og í vinnu með ungu fólki í tómstundastarfi.

Þátttakendur á þessu námskeiði komu víða að s.s. af Ströndum, Reykjavíkursvæðinu og af Suðurlandi og tengdust ýmsum starfsgreinum og áhugamálum s.s. skógarbúskap, ferðaþjónustu, smíði, kennslustarfi, skógarhirðu og handverki.

 

Háskóli Íslands

Á námskeiðinu var sem fyrr lögð áhersla á tálgutæknina, ferskar viðarnytjar, þurrkaðferðir, brýningu og umhirðu bitáhalda, yfirborðsmeðhöndlun gripa og sjálfbærninytjar í nærumhverfinu og skógar- og trjáhirðu.

Í námskeiðsmatinu töldu þátttakendur námskeiðið vera fróðlegt, skemmtilegt og hagnýtt. Það bregst ekki heldur jákvæð umsögn um aðstöðuna aðbúnaðinn í gróðurskálanum og matinn hjá Sveinu í eldhúsinu í Gamla Garðyrkjukólanum á Reykjum. Ekki spillti fyrir að ávaxtatré og runnar voru blómstrandi og lyktin og litirnir eftir því í skálanum.

 

Háskóli Íslands
Ávaxtatré í blóma

 

 Texti og myndir: Ólafur Oddsson, fræðslufulltrúi hjá Skógrækt ríkisins.

 

 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image