Stúdentaverðlaun Vinnís 2018

Vinnuvistfræðifélag Íslands veitir verðlaun 22.mars n.k. til háskólanema fyrir verkefni sem hefur vinnuvistfræðilegt gildi og þykir skara fram úr öðrum á því sviði. Verðlaunahafi verður fulltrúi Íslands á NES2018 ráðstefnu (Nordic Ergonomics and Human Factors Society) í Reykjavík 24.-27. Júní n.k. Sjá nánar hér. Sambærileg verðlaun verða veitt á hinum Norðurlöndunum og verður haldin fyrirlestrarröð á NES ráðstefnunni sem mun samanstanda af vinningshöfum frá hverju Norrænu landanna. Hver fulltrúi leggur fram 20 mínútna kynningu á verkefninu. Íslenska dómnefndin verður skipuð einum fulltrúa háskólasamfélagsins, einum fulltrúa atvinnulífsins og einum fulltrúa stjórnar Vinnís og velja þeir vinningshafa úr röðum umsækjenda.

Verðlaunin samanstanda af:

  • frírri þátttöku fyrir einn á árlegri NES - ráðstefnu
  • eins árs aðild hjá heimafélaginu (Vinnís)
  • 100.000,- iskr, viðurkenningarskjali og blómum
     

Umsókn með 400–800 orða útdrætti skal senda inn fyrir 28.febrúar til Vinnís, á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. sem einnig veitir allar nánari upplýsingar.

Skilyrði til þátttöku eru:

  • Verkefnið hafi verið unnið á einu af síðustu þremur miserum
  • Skýrslan hafi verið samþykkt við háskóla eða aðra sambærilega menntastofnun
  • Verkefnið verður að hafa verið metið til a.m.k. 15 ECTS eininga
  • Verkefnið má ekki hafa verið til löggildingar eða doktorsprófs
  • Skýrslan verður að vera skrifuð á dönsku, finnsku, íslensku, norsku, sænsku eða ensku
  • Samantekt (Abstract) á ensku skal fylgja með skýrslunni 
  • Verkefnið má hafa verið unnið af einum eða fleiri einstaklingum

Skilgreining á vinnuvistfræði

Vinnuvistfræði er fræðigrein sem fjallar um að skilja samspil manns og umhverfis. Í vinnuvistfræði er leitast við að samþætta kenningar, þekkingu, reynslu og aðferðir margra fræðigreina með það að markmiði að bæta líðan einstaklinga. Í vinnuvistfræði er lögð áhersla á að móta og meta störf, verkefni, vörur, umhverfi og aðferðir til aðlögunar að þörfum og getu fólks. Í vinnuvistfræði er nálgunin heildstæð þar sem tekið er tillit til líkamlegra-, vitsmunalegra- og félagslegra þátta ásamt skipulagi og umhverfi.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image