Starf við LbhÍ: lektor í umhverfisskipulagi

Laust er til umsóknar 100% starf lektors í umhverfisskipulagi við Auðlinda- og umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands. Starfið felur í sér skyldur sem lúta að rannsóknum, kennslu og stjórnun í Auðlinda- og umhverfisdeild.

Lektor er ætlað að byggja upp rannsóknir á sérsviði sínu, birta greinar þær, afla rannsóknarstyrkja og taka virkan þátt í bæði alþjóðlegum sem innlendum verkefnum og samstarfi.  Enn fremur að bera ábyrgð á og kenna í námskeiðum á grunnstigi, leiðbeina nemendum í lokaverkefnum, auk þess að taka virkan þátt í störfum deildar. Lektor hefur jafnframt tækifæri til að þróa námskeið og kennslu í grunnnámi.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum er algjört skilyrði og ætlast er til að umsækjandi sýni fram á þessa færni í umsóknarferlinu.
• Meistarapróf í landslagsarkitektúr.
• Góð grunnþekking  og hæfni í landmótunarvinnu og hönnun.
• Reynsla og færni í notkun helstu hönnunarforrita (Adobe, SketchUp, Cad) er skilyrði.
• Umsækjandi hafi kynnt fræðasvið sitt á viðurkenndum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn í þeim efnum. 
• Reynsla af kennslu, geta og vilji til þess að þróa nýjar aðferðir til þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu.
• Æskilegt er að umsækjandi hafi átt aðild að rannsóknarverkefnum og öflun styrkja í samvinnu við aðra.
• Stjórnunarreynsla og íslenskukunnátta er æskileg.

Horft verður til þess að umsækjendur falli sem best að stefnu, aðstæðum og þörfum Auðlinda- og umhverfisdeildar.

Upphafleg ráðning verður til fimm ára í samræmi við lög um opinbera háskóla nr. 85/2008.  Að þeim tíma liðnum verður tekin ákvörðun um framhaldið.  Gert er ráð fyrir að umsækjandi hefji störf sem fyrst og eigi síðar en 15.ágúst  2018.. Athygli er vakin á því að samkvæmt reglum Landbúnaðarháskóla Íslands er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors strax við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna um nýráðningar og framgang akademískra starfsmanna við Landbúnaðarháskóla Íslands frá 20. september 2012.

Kennsla í grunnnámi við LbhÍ fer að jafnaði fram á íslensku í samræmi við málstefnu skólans. Ef móðurmál viðkomandi er ekki íslenska er ætlast til að hann hafi öðlast næga færni til að nota íslensku við kennslu innan þriggja ára frá því að hann hefur störf. Starfsstöðvar LbhÍ eru þrjár: að Hvanneyri í Borgarfirði, á Keldnaholti í Reykjavík og að Reykjum í Ölfusi. Kennsla sú sem fellur undir umrætt starf fer fram að Hvanneyri.

Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Frekari upplýsingar veitir Auður Magnúsdóttir, deildarforseti Auðlinda- og umhverfisdeildar í síma +433 5000 eða með tölvupósti (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.)

Umsóknarfrestur er til 20. Febrúar. Umsóknir sendist til Landbúnaðarháskóla Íslands b/t Arna Garðarsdóttir Ásgarði – 311 Hvanneyri eða í tölvupósti This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið, kynningarbréf þar sem m.a. koma fram upplýsingar um samskiptahæfni umsækjanda, rannsóknaráherslur og hugmyndir um kennsluaðferðir og þróun þekkingarmiðlunar á sviðinu. 

Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Auglýsing getur gilt í allt að sex mánuði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image