Starf við LbhÍ: Forseti auðlinda- og umhverfisdeildar

Laus er til umsóknar staða forseta auðlinda- og umhverfisdeildar við LbhÍ sem felur meðal annars í sér yfirumsjón með starfsemi og rekstri deildarinnar og stefnumörkun í samræmi við stefnu LbhÍ.  Um er að ræða nýja stöðu sem stofnað er til vegna sameiningar tveggja deilda háskólans, auðlindadeildar og umhverfisdeildar í eina deild. Starfið felur því m.a. í sér breytingastjórnun og endurskipulagningu á faglegu starfi.

Ráðið er til fjögurra ára í starfið með möguleika á framlengingu í önnur fjögur ár. Um fullt starf er að ræða.

Miðað er við að nýr deildarforseti geti hafið störf 1. ágúst 2016.

Helstu ábyrgðarþættir:
Frumkvæði og forysta um málefni deildarinnar.
Yfirumsjón með rannsóknavirkni og kennslu.
Gæðastjórnun í samráði við sviðsstjóra kennslu- og gæðamála.
Stjórnsýsluleg og rekstrarleg ábyrgð.
Starfsmannamál.
Yfirumsjón með innlendum og erlendum samskiptum.
Seta í framkvæmdastjórn skólans.

Staða deildarforseta heyrir beint undir rektor. Til greina kemur að deildarforseti komi að kennslu og rannsóknum innan þeirra fræðasviða sem heyra undir deildina.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur skulu uppfylla almenn hæfisskilyrði sem háskólakennarar á vettvangi þeirra fræða sem kennd eru við deildina eða tengjast helstu viðfangsefnum þeirra.
Doktorspróf er skilyrði.
Samskiptahæfni, jákvæðni, drifkraftur og geta til að takast á við breytingar.
Leiðtogahæfileikar og geta til að hvetja aðra til árangurs.
Hæfileiki til að móta og miðla framtíðarsýn.
Hæfileiki til að byggja upp og leiða teymi akademískra starfsmanna.
Reynsla af rekstri og stjórnun æskileg.
Reynsla af starfi innan háskóla æskileg.

?Um ráðninguna fer að öðru leyti eftir reglum fyrir Landbúnaðarháskóla Íslands nr. 250/2016 og reglna um nýráðningar og framgang akademískra starfsmanna við Landbúnaðarháskóla Íslands frá 20. september 2012.

Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2016. Umsóknir sendist til Landbúnaðarháskóla Íslands b/t Kristín Siemsen  Ásgarði – 311 Hvanneyri eða í tölvupósti This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Auglýsing getur gilt í allt að sex mánuði.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Björn Þorsteinsson rektor LbhÍ í síma 433 5000 eða tölvupósti This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image