• Forsíða
  • Fréttir
  • Starf lektors á sviði endurheimtar vistkerfa við Landbúnaðarháskóla Íslands
Starf lektors á sviði endurheimtar vistkerfa við Landbúnaðarháskóla Íslands
20.11.2025
Mynd sem tengist textanum

Landbúnaðarháskóli Íslands auglýsir starf lektors í endurheimt vistkerfa laust til umsóknar./The position of Assistant Professor in Restoration Ecology at the Agricultural University of Iceland is open for applications.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppbygging alþjóðlegra viðurkenndra rannsókna á sviði endurheimtar vistkerfa
  • Birting ritrýndra vísindagreina, og virk þátttaka í alþjóðlegu og innlendu samstarfi
  • Öflun rannsóknastyrkja á sviði endurheimtar vistkerfa og uppbygging rannsóknahópa
  • Virk þátttaka í LIFE verkefninu Peatland-LIFEline.is
  • Þátttaka í kennslu og þróun námsleiða háskólans og leiðbeining nemenda
  • Þátttaka í kennslu og leiðbeining nemenda í Landgræðsluskóla GRÓ LRT
  • Virk þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans

Hæfniskröfur

  • Doktorsgráða í endurheimt vistkerfa eða skyldum greinum umhverfisvísinda
  • Reynsla af rannsóknum og starfi sem tengist endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu
  • Birtingar greina á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi
  • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að láta ferilskrá, kynningarbréf, prófskírteini auk ritskrá fylgja umsókn sinni.

Athygli er vakin á því að samkvæmt reglum LbhÍ er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors strax við nýráðningu ef umsækjandi uppfyllir viðkomandi hæfnisviðmið.

Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eyjólfur Guðmundsson

Tölvupóstur: [email protected]

Sími: 4335000

Guðmunda Smáradóttir

Tölvupóstur: [email protected]

Sími: 4335000






Sækja um starf