Staða nýdoktors er laus til umsóknar til að taka þátt í verkefninu Áhrif endurheimtar votlendis á jöfnuð gróðurhúsalofttegunda og aðra vistkerfisferla (ReWet)

Staða nýdoktors er laus til umsóknar til að taka þátt í verkefninu Áhrif endurheimtar votlendis á jöfnuð gróðurhúsalofttegunda og aðra vistkerfisferla (ReWet). Verkefnið er styrkt er af Rannsóknasjóði RANNÍS. Um er að ræða ráðningu til 2,5 ára.

Staða nýdoktors í verkefninu Áhrif endurheimtar votlendis á jöfnuð gróðurhúsalofttegunda og aðra vistkerfisferla (ReWet)

Staða nýdoktors er laus til umsóknar til að taka þátt í verkefninu Áhrif endurheimtar votlendis á jöfnuð gróðurhúsalofttegunda og aðra vistkerfisferla (ReWet). Verkefnið er styrkt er af Rannsóknasjóði RANNÍS. Um er að ræða ráðningu til 2,5 ára.

Losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) frá framræstu landi er stærsti einstaki þátturinn í losunarbókhaldi Íslands en er háð töluverðri óvissu vegna skorts á frekari beinum mælingum hérlendis. Í ReWet verkefninu eru í fyrsta sinn gerðar beinar mælingar sem ná samfellt yfir fleiri ár á losun GHL og hringrás kolefnis, vatns og orku yfir framræstu votlendi sem verður svo endurheimt. Verkefnið er leitt af Landbúnaðarháskóla Íslands og samstarfsaðilar eru Land og skógur, Háskólinn á Akureyri, Svarmi ehf og Helsinkiháskóli.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Virk þátttaka í útirannsóknum árið um kring

  • Rekstur iðufylgnistöðvar (flæði CO2, CH4 og H2O) og mæliklefa (flæði N2O og hinna GHL) auk mats á afrennsli af uppleystu kolefni og ýmsum öðrum mælingum á jarðvegi og gróðri

  • Umsjón með sumarstarfsmönnum og framhaldsnemum sem vinna við verkefnið og samstarf við aðra þátttakendur

  • Utanumhald með stórum gagnasöfnum og vinna við greiningar sem tengja saman mælingar á ólíkum vistkerfisþáttum

  • Þátttaka í birtingum niðurstaðna frá verkefninu í alþjóðlegum vísindaritum í samstarfi við aðra þátttakendur

 

Hæfniskröfur

  • Doktorsgráða í umhverfisvísindum, vistkerfisfræði, votlendisvistfræði, umhverfislandfræði eða skyldum greinum

  • Reynsla af vinnu með iðufylgnimælingar og/eða klefamælingar á flæði gróðurhúsalofttegunda og úrvinnslu og túlkun slíkra mæligagna

  • Geta til að vinna sjálfstætt við erfiðar umhverfisaðstæður og sem hluti af hópi

  • Ökuréttindi

  • Góð samskiptafærni

  • Mjög góð færni í talaðri sem og ritaðri ensku

  • Reynsla af ritun og birtingu alþjóðlegra vísindagreina

 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

  • Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags

  • Starfsstöð verður hjá Landbúnaðarháskóla Íslands að Árleyni 22 í Reykjavík og/eða Hvanneyri, 311 Borgarnesi

  • Með umsókn skulu fylgja kynningarbréf, starfsferilskrá auk upplýsinga um meðmælendur. Við ráðningu skal leggja fram staðfestingu á doktorsgráðu.

  • Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf sem fyrst en það er umsemjanlegt.

  • Starfshlutfall er 100%

 

Umsóknarfrestur er til og með 02.04.2024

 

Nánari upplýsingar veitir

Bjarni Diðrik Sigurðsson, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 433 5000

Guðmunda Smáradóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 433 5000

 

Sækja um starf

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image