Mánudaginn 16. nóvember kom stór hópur líf- og náttúrufræðinga saman á Keldnaholti til að ræða hvernig leggja megi heildstætt mat á líffræðilega fjölbreytni sem tekur mið af sérstöðu íslenskra vistkerfa. Vinnustofan var hluti af verkefni sem er styrkt af Orkurannsóknasjóði og miðar að því að þróa samræmdar aðferðir til að meta stöðu lífríkisins og fylgjast með breytingum á því.
Á vinnustofunni voru líflegar umræður um hvernig nýta megi fyrirliggjandi þekkingu og gögn inn í heildstætt mat og hvar brýnast sé að stoppa í þekkingargöt. Þátttakendur ræddu þessi efni út frá þremur sjónarhornum, með áherslu á haf og strendur, ferskvatn og land. Þrátt fyrir ólík viðfangsefni komu sömu áherslur fram í umræðum hópanna. Breið samstaða var um mikilvægi heildstæðs mats og að brýnt væri að gera fyrirliggjandi gögn aðgengilegri, samræma þau og efla samstarf milli stofnana.
Mikill áhugi var á að halda samstarfinu áfram og þróa verkefnið frekar. Landbúnaðarháskóli Íslands, Náttúrustofa Austurlands og aðrar stofnanir sem standa á bakvið verkefnið þakka þátttakendum kærlega fyrir að deila þekkingu sinni og leggja sitt af mörkum til næstu skrefa.