Rúmgott skrifstofuhúsnæði til leigu á Keldnaholti
17.11.2026
Mynd sem tengist textanum

Landbúnaðarháskóli Íslands auglýsir til leigu rúmgott og vel staðsett skrifstofuhúsnæði að Árleyni 22 í Reykjavík.

Um er að ræða allt að 500 ² húsnæði með 21 misstórum skrifstofum og að auki önnur aðstaða, sem hentar vel fyrir fyrirtæki, stofnanir eða aðra starfsemi sem þarfnast góðrar vinnuaðstöðu. Leigjendum stendur til boða aðgangur að mötuneyti og fundarherbergjum, auk möguleika á að nýta rannsóknarstofur eftir nánara samkomulagi.

Við húsnæðið eru rúmgóð bílastæði og hleðslustöðvar fyrir rafbíla.

Áhugasömum er velkomið að hafa samband til að fá frekari upplýsingar eða bóka skoðun á húsnæðinu.

Hafið samband við Gunnar Viðar Gunnarsson, gunnarvidar@lbhi.is, sími 433 5000.