
Opnar meistaravarnir verða haldnar á Keldnaholti (Árleynir 112, 112 Reykjavík) þriðjudaginn 26. maí kl. 12:30–16:30.
Framhaldsnemar kynna meistaraverkefni sín og að lokinni dagskrá verður boðið upp á kaffi og stutta athöfn. Öll áhugasöm eru velkomin.
Geitaskarð
Klukkan: 12:30 - 13:15
Titill verkefnis: Umbreyting sjónarmiða íbúa í skipulagsferli grænna almenningsrýmis: Tilvikið Akureyrarvöllur
Nemandi: Hrafnhildur A. Jónsdóttir
Leiðbeinandi: Harpa Stefánsdóttir
Prófdómari: Jón Kjartan Ágústsson
Klukkan: 13:15 - 14:00
Titill verkefnis: Gróður og list í borgarrýmum
Nemandi: Sólrún Margrét Ólafsdóttir
Leiðbeinandi: Harpa Stefánsdóttir
Prófdómari: Kristín Þorleifsdóttir
Klukkan: 14:15 - 15:00
Titill verkefnis: Söguleg almenningsrými á Siglufirði: Greining með HUL-nálgun
Nemandi: Elva Dögg Sverrisdóttir
Leiðbeinendur: Harpa Stefánsdóttir, Astrid Lelarge og Daniele Stefano
Prófdómari: Óskar Örn Arnórsson
Klukkan: 15:00 - 15:45
Titill verkefnis: Lifandi menningararfur sem brú milli fortíðar og framtíðar: Misræmi og tækifæri í skipulagi Vesturbyggðar
Nemandi: Tinna Holt Victorsdóttir
Leiðbeinandi: Vignir Helgason
Prófdómari: Þór Hjaltalín
Stúdíó
Klukkan: 12:30 - 13:15
Titill verkefnis: Nýting gróðurs til kolefnisbindingar á veghelgunarsvæðum: Tilviksrannsókn á veghelgunarsvæði við Arnarnesveg í Kópavogi
Nemandi: Magdalena Mokrzan
Leiðbeinendur: Christopher Holtkamp og Erna Bára Hreinsdóttir
Prófdómari: Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir
Klukkan: 13:15 - 14:00
Titill verkefnis: Þegar stefna mætir landi: Vernd og endurheimt birkiskóga í aðalskipulagi sveitarfélaga
Nemandi: Berglind Guðjónsdóttir
Leiðbeinendur: Ása Aradóttir, Salvör Jónsdóttir og Kristín Svavarsdóttir
Prófdómari: Ester Anna Ármannsdóttir
Klukkan: 14:15 - 15:00
Titill verkefnis: Frá frístundabyggð til íbúðarbyggðar: Togstreita í skipulagi milli stefnumótunar og framkvæmdar við skipulagsbreytingar í minni sveitarfélögum
Nemandi: Karitas Ottesen Ásmundsdóttir
Leiðbeinandi: Salvör Jónsdóttir
Prófdómari: Sebastian Peters
Klukkan: 15:00 - 15:45
Titill verkefnis: Smáhýsi sem úrræði fyrir brothætt byggðarlög á Íslandi
Nemandi: Ásrún Óskarsdóttir
Leiðbeinandi: Harpa Stefánsdóttir
Prófdómari: Kristjana Aðalgeirsdóttir
Klukkan: 16:00 - 16:30
Athöfn: Blómaafhending