Opið fyrir umsóknir um styrki til rannsókna á sviði húsnæðismála á Íslandi

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til rannsókna á sviði húsnæðismála á Íslandi sem Íbúðalánasjóður hyggst úthluta vegna ársins 2017. Styrkirnir standa til boða öllum þeim sem stunda rannsóknir á meistarastigi eða hærra menntunarstigi, án tillits til fræðasviða.

Heildar fjárhæð styrkja á árinu 2017 er allt að 15 milljónir króna.  

Verulegur vandi hefur skapast á húsnæðismarkaðnum hér á landi síðustu misseri og eitt af því sem talið er geta komið í veg fyrir að svipað neyðarástand skapist að nýju er efling rannsókna tengdum húsnæðismálum.

Íbúðalánasjóður vill því hvetja alla sem áhuga hafa á húsnæðismálum og hafa gert rannsóknir því tengt á árinu 2017 eða hafa hug á því að gera rannsóknir tengdar húsnæðismálum á árinu 2018 að sækja um á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 31.janúar 2018.

Töluverðum upphæðum verður varið til verkefnisins. Veittir verða allt að 15 styrkir á ári og er miðað við að styrkir séu að jafnaði ekki hærri en 1 milljón kr. en það fer þó eftir umfangi verkefna.
Með veitingu styrkjanna er vonast til að fjölga verkefnum og rannsóknum á sviði húsnæðismála sem geta eflt íslenskan húsnæðismarkað og stuðlað að auknu jafnvægi í húsnæðismálum hér á landi.

Hægt er að nálgast reglur um styrkveitingu og umsókn um styrk hér
.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image