Frá undirritun umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á viljayfirlýsingu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) um að styðja við uppbyggingu starfsstöðva Náttúrufræðistofnunar og fleiri opinberra stofnana ráðuneytisins á Vesturlandi.

Frá undirritun umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á viljayfirlýsingu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) um að styðja við uppbyggingu starfsstöðva Náttúrufræðistofnunar og fleiri opinberra stofnana ráðuneytisins á Vesturlandi. Mynd stjornarradid.is

Nýjar höfuðstöðvar Náttúrufræðistofnunar verða á Akranesi og starfstöð sett upp á Hvanneyri

Nýjar höfuðstöðvar Náttúrufræðistofnunar verða á Akranesi samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Ráðherra undirritaði í dag viljayfirlýsingu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) um að styðja við uppbyggingu starfsstöðva Náttúrufræðistofnunar og fleiri opinberra stofnana ráðuneytisins á Vesturlandi.

iljayfirlýsingin sem undirrituð var í dag  er ætlað færa ný og laus störf stofnunarinnar á Vesturland, en í ályktun sem samþykkt var á Haustþingi Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi 2024 var skorað á ríkisstjórnina að fjölga opinberum störfum á Vesturlandi.

Einnig kemur fram í yfirlýsingunni að hluti starfsstöðva sem heyrir undir ráðuneytið og stofnanir þess verði í húsnæði Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Verður það útfært í samvinnu við stjórnendur viðkomandi stofnana. Verður verkefnið unnið í samvinnu við önnur ráðuneyti, Framkvæmdasýslu – Ríkiseignir, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Borgarbyggð. Á Hvanneyri eru mikil tækifæri til samstarfs og samvinnu Landbúnaðarháskólans og Náttúrufræðistofnunar á fjölbreyttum sviðum rannsókna og vöktunar náttúrunnar. Auk þess er  Hvanneyri og náttúran umhverfis friðlýst svæði og einnig svokallað Ramsar-svæði, sem þýðir að öll nýting á svæðinu skal vera með sjálfbærum hætti með sérstaka áherslu á vernd votlendis og lífsvæði fyrir fugla á lands- og heimsvísu.

Nánar á vef stjórnarráðsins

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image