• Forsíða
  • Fréttir
  • Ný rannsókn: Óskýrleiki og skortur á samræmdri stjórnsýsluumgjörð um náttúruvá í aðalskipulagi sveitarfélaga
Ný rannsókn: Óskýrleiki og skortur á samræmdri stjórnsýsluumgjörð um náttúruvá í aðalskipulagi sveitarfélaga
22.09.2026
Mynd sem tengist textanum

Elísabet Bjarnadóttir hefur lokið við lokaverkefni til MS-gráðu í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands. Í meistararitgerð sinni rannsakaði hún samþættingu náttúruvár í aðalskipulagsgerð sveitarfélaga á Íslandi, með áherslu á stjórnsýsluumgjörð, ábyrgð og verklag. Titill ritgerðarinnar er „Samþætting náttúruvár í aðalskipulagsgerð sveitarfélaga á Íslandi: Greining á stjórnsýsluumgjörð, ábyrgð og verklagi“ (á ensku: „Integration of Natural Hazards into Municipal Master Planning in Iceland: An analysis of the Legal and Governance Framework, Responsibilities and Planning Practices“).

Helstu niðurstöður rannsóknarinnar

Náttúruatburðir síðustu ára, einkum á Reykjanesskaga, hafa dregið fram mikilvægi þess að taka markvisst tillit til náttúruvár í skipulagsákvörðunum til að stuðla að hamfaraáhættuminnkun og auknu samfélagsöryggi. Rannsóknin byggði á heimildarýni og netkönnunum meðal skipulagsfulltrúa, ráðgjafa, skipulagsnefnda, almannavarnanefnda og umsagnaraðila.

Niðurstöðurnar sýna að áhættumat skipulags er mikilvæg forsenda áhættuupplýstra skipulagsákvarðana, en óskýrleiki ríkir um hugtók, ábyrgð og framkvæmd slíks mats. Þótt skýr laga- og stjórnsýsluumgjörð sé um ofanflóðavá og skipulagsgerð, skortir sambærilega umgjörð, leiðbeiningar og verklag fyrir aðra náttúruvá. Flestir þátttakendur telja að tekið sé tillit til náttúruvár að hluta, en mat á því hvort það sé gert með fullnægjandi hætti var mismunandi milli hópa. Rannsóknin bendir til þess að skýra þurfi ábyrgð, styrkja laga- og stjórnsýsluumgjörð og koma á samræmdara ferli áhættumats við aðalskipulagsgerð til að efla hamfaraáhættuminnkun á Íslandi.

Leiðbeinendur og prófdómari

Leiðbeinendur verkefnisins voru Dr. Harpa Stefánsdóttir, prófessor í skipulagsfræði og námsbrautarstjóri MS-náms í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands, og Dr. Emmanuel Pierre, lektor í landupplýsingum og fjarkönnun við Landbúnaðarháskóla Íslands. Prófdómari var Dr. Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við jarðvísindadeild Háskóla Íslands.