
Landbúnaðarháskóli Íslands heldur námskeið um meðferð varnarefna dagana 7.-11. apríl næstkomandi að Keldnaholti í Reykjavík. Kennt er samkvæmt nýrri námskrá sem byggist á efnalögum nr. 61/2013 og ákvæðum í væntanlegri reglugerð um meðferð varnarefna og notendaleyfi.
Námskeiðið er ætlað fyrir eftirfarandi markhópa:1. Þá sem hyggjast gerast ábyrgðarmenn í markaðssetningu varnarefna,2. Þá sem hyggjast nota varnarefni í landbúnaði og garðyrkju, þ.m.t. garðaúðun,3. Þá sem hyggjast nota varnarefni við eyðingu meindýra.Sjá nánarauglýsingu um námskeiðið.Allar nánari upplýsingar má fá á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands. Smella hér.
Skráning á námskeið og greiðsla námskeiðsgjalds fer fram í gegnum netið (www.lbhi.is/namskeid). Veljið viðkomandi námskeið og smellið á „Skráning". Einnig er hægt að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í síma 433 5000.