• Forsíða
  • Fréttir
  • NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands
NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands
02.09.2026
Mynd sem tengist textanum
Tilmann Disselhoff, framkvæmdastjóri NABU Climate Fund, og Ragnheiðar Þórarinsdóttur, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands

Landbúnaðarháskóli Íslands (LBHÍ) og NABU Climate Fund hafa undirritað samstarfssamning um stuðning við endurheimt framræsts votlendis á Hvanneyri og í nágrenni þess. Samningurinn gildir til ársins 2031.

Undirritun samningsins fór fram í vikunni, af Ingo Ammermann framkvæmdastjóra NABU Climate Fund, og Ragnheiðar Þórarinsdóttur, rektors Landbúnaðarháskóla Íslands.

Með samningnum skuldbindur NABU Climate Fund sig til að leggja fram fjármagn til endurheimtar nokkurra framræstra votlendissvæða á láglendi við Hvanneyri. Auk þess munu votlendissérfræðingar NABU, sem teljast meðal fremstu sérfræðinga Evrópu á þessu sviði, veita stuðning við rannsóknir og mælingar innan Myralífsverkefnisins (PEATLAND LIFEline) á Íslandi.

Votlendi gegnir lykilhlutverki í loftslagsmálum og vernd líffræðilegrar fjölbreytni er mikilvæg. Framræst votlendi losar gróðurhúsalofttegundir, en með endurheimt þess má draga úr losun, bæta vistkerfi og efla búsvæði fjölmargra tegunda. Vernd og endurheimt þessara einstöku vistkerfa er því mikilvæg aðgerð í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og hnignun náttúrunnar.

Verkefnið sýnir jafnframt hvernig samvinna opinberra aðila, frjálsra félagasamtaka og einkageirans getur skapað raunverulegan árangur í náttúruvernd. Með stuðningi fyrirtækja sem leggja fram fé í gegnum NABU Climate Fund skapast ný tækifæri til að auka fjármögnun náttúrutengdra loftslagslausna og flýta fyrir nauðsynlegum aðgerðum til verndar og endurheimtar vistkerfa.

Landbúnaðarháskóli Íslands fagnar samstarfinu og lítur á samninginn sem mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu þekkingar, rannsókna og framkvæmdaverkefna á sviði endurheimtar votlendis á Íslandi.