
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á miniMASTER CLASS: Creating Impact from Research hálfs dags viðburð sem fjallar um hvernig hægt er að færa rannsóknir nær samfélagi, atvinnulífi og nýsköpun. Fyrir meistaranema, doktorsnema, nýdoktorar og starfsfólk LBHÍ
Hvernig geta rannsóknir skapað verðmæti utan fræðasamfélagsins? Hvernig er hægt að umbreyta rannsóknarniðurstöðum í nýsköpun, frumkvöðlastarf, stefnumótun eða hagnýtar lausnir sem nýtast samfélaginu?
Fyrir meistaranema, doktorsnema, nýdoktorar og starfsfólk LBHÍ.
📍 Keldnaholti, LBHÍ
📅 26. nóvember 2026
🕐 13:00-16:00
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi LBHÍ, Auðnu Tæknitorgs, Gleipnis, Kveikju og UNIgreen.
Á þessum gagnvirka viðburði koma saman rannsakendur, nýdoktorar, doktorsnemar, meistaranemar og starfsfólk háskóla til fræðslu, umræðna og tengslamyndunar. Fjallað verður um nýsköpun, áhrif rannsókna, tækifæri til hagnýtingar, samstarf við utanaðkomandi aðila og hvernig rannsóknir geta stuðlað að lausnum á samfélagslegum áskorunum.
Hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin í rannsóknum eða hefur þegar hugmyndir með möguleg samfélagsleg áhrif, mun viðburðurinn veita innblástur, hagnýt verkfæri og verðmæt tengsl.
Við hlökkum til að sjá ykkur á Keldnaholti..