Lokaverkefni nema Landgræðsluskóla HSþ

Mánudaginn 4. september kynntu nemar Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna niðurstöður rannsóknarverkefna sinna á málstofu sem haldin var á starfsstöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti í Reykjavík. Málstofan fór fram í Geitaskarði á 2. hæð, frá kl. 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Í ár nema 14 sérfræðingar við Landgræðsluskólann. Þau koma frá Níger, Gana, Eþíópíu, Úganda, Lesótó og Malaví í Afríku og Mongólíu og Úsbekistan í Mið-Asíu. Í heimalöndum sínum starfa þau sem sérfræðingar við háskóla, ráðuneyti, rannsókna- og eftirlitsstofnanir og héraðsstjórnir á sviði landnýtingar- og landverndarmála. Hálfs árs námi þeirra við Landgræðsluskólann er senn að ljúka og eftir að námi þeirra lýkur hér á landi, halda þau til síns heima og halda áfram sínum störfum.

Verkefnin sem kynnt voru á málstofunni voru afar fjölbreytt, eins og sjá má af dagskránni hér.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image