- Forsíða
- Fréttir
- Lífaflfræði knapans í brennidepli: Maria Teresa Engell heimsótti nemendur í tamninganámi LBHÍ

Nemendur tamningarnámsins við Landbúnaðarháskóla Íslands hafa á síðastliðnum vikum fengið áhugaverða fyrirlestra ein af þeim sem kom var Maria Teresa Engell. Það var einstaklega fróðlegt og ánægjulegt að fá Maria Teresa Engell, dýralækni, þjálfara og rannsakanda á samspili hests og knapa, í heimsókn til nemenda tamninganámsins.
Maria Teresa er stofnandi Rider In Balance og hefur í gegnum rannsóknir sínar lagt mikla áherslu á lífaflfræði knapa, jafnvægi, líkamsbeitingu og hvernig hreyfingar knapans hafa áhrif á hestinn. RIB-aðferðin byggir á þessari rannsóknarvinnu og tengir saman fræðilega þekkingu og hagnýta þjálfun.
Í fyrirlestrinum fengu nemendur innsýn í mikilvægi jafnvægis og réttrar líkamsbeitingar knapans og hvernig staða og hreyfingar knapans geta haft áhrif á hreyfingar, jafnvægi og frammistöðu hestsins. Einnig var lögð áhersla á að skoða knapann sem hluta af heildinni til að bæta samspili manns og hests.
Það er afar verðmætt fyrir verðandi tamningamenn að fá að kynnast þessum aðferðum og tengja saman þekkingu á hestinum, líkama knapans og þeirri lífaflfræði sem á sér stað þegar hestur og knapi vinna saman.
Við þökkum Maria Teresa kærlega fyrir komuna, fróðlegan fyrirlestur og áhugaverða nálgun sem gaf nemendum ný verkfæri til að taka með sér inn í áframhaldandi nám og starf með unghrossum.