Krónan og Landbúnaðarháskóli Íslands hefja samstarf
10.09.2026
Mynd sem tengist textanum

Krónan og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning sem gildir árin 2026–2028. Markmiðið er að færa nemendur skólans nær atvinnulífinu, efla þekkingu þeirra á matvælamarkaði og styrkja tengsl Landbúnaðarháskólans, bændasamfélagsins og Krónunnar. Samstarfið nær meðal annars til náms í búfræði og búvísindum.

Starfsfólk Krónunnar mun taka þátt í kennslu með fyrirlestrum, fyrirtækjaheimsóknum og ráðgjöf. Nemendur fá þannig innsýn í starfsemi matvöruverslunar, vöruþróun, neytendahegðun og sjálfbærni og vinna með raunveruleg viðfangsefni íslensks matvörumarkaðar.

„Við erum mjög spennt fyrir því að hefja þetta samstarf á Hvanneyri. Hér er öflugt samfélag og mikil þekking á íslenskri matvælaframleiðslu, og við sjáum spennandi tækifæri til að tengja hana betur við það sem við sjáum gerast hjá neytendum og á matvörumarkaðnum. Með samstarfinu getum við miðlað reynslu okkar til nemenda og um leið lært af hugmyndum þeirra og sýn,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Frá býli að borði

Á skólaárinu 2026–2027 verður sérstök áhersla lögð á að skoða virðiskeðju matvæla í heild sinni, frá býli að borði. Landbúnaðarháskólinn rekur meðal annars sauðfjár- og mjólkurbú auk kornræktar og er frumframleiðsla fyrirferðarmikill þáttur í náminu. Alls stunda um 400 nemendur hefðbundið nám við skólann.

Með samstarfinu fá nemendur að fylgja afurðum lengra eftir virðiskeðjunni og öðlast aukinn skilning á þörfum markaðarins, vöruþróun og kauphegðun neytenda. Einnig verður fjallað um tækifæri til að efla lífræna matvælaframleiðslu og auka sýnileika lífrænna vara gagnvart neytendum.

„Landbúnaðarháskólinn er rótgróinn hluti samfélagsins á Hvanneyri og gegnir mikilvægu hlutverki í menntun og rannsóknum sem tengjast landbúnaði, náttúru og matvælaframleiðslu. Samstarfið við Krónuna gefur nemendum okkar tækifæri til að takast á við raunveruleg viðfangsefni og tengja námið enn betur við atvinnulíf og samfélag,“ segir Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands.

Heimsendingar hafnar á Hvanneyri

Krónan hóf nýlega heimsendingar á Hvanneyri. Til að byrja með verður ekið með pantanir þrisvar sinnum í viku frá verslun Krónunnar á Akranesi. Með þjónustunni fá nemendur, starfsfólk skólans og aðrir íbúar svæðisins aukið aðgengi að mat- og dagvöru í gegnum Snjallverslun Krónunnar og hafa viðtökur verið afar góðar hingað til.

Það verður einnig í höndum nemenda að kanna hvernig þjónustan nýtist skólasamfélaginu og öðrum íbúum Hvanneyrar og hvort tækifæri séu til að þróa hana áfram. Þeir munu meðal annars greina þarfir og reynslu notenda og leggja fram hugmyndir um áframhaldandi þróun þjónustunnar.