
Þriðjudaginn 1. september verður Kornþing og spildudagur haldinn á Hvanneyri. Dagskráin fyrir hádegi fer fram í Ásgarði (Borg, 2. hæð) á milli kl. 10:00 og 12:00. Eftir hádegi verður farið út í akur þar sem tilraunir og niðurstöður verða kynntar á staðnum. Þar fá þátttakendur að skoða 1.680 bygg- og hafrareiti ásamt rúmlega 1.000 vetrarhveitireitum sem sáð var fyrir um viku síðan.
Á þinginu verða flutt fjölbreytt og áhugaverð erindi sem tengjast kornrækt á Íslandi. Meðal annars verður fjallað um plöntukynbótaverkefnið Vala, rekstrarhagkvæmni kornræktar, uppruna íslenska byggsins, nákvæmnisbúskap og tilfærslu niturs í byggi.
Dagskrá dagsins:
10:00 - Fundarstjóri setur kornþingið (Fundarstjóri: Helgi Eyleifur Þorvaldssson)
10:03 - Plöntukynbótaverkefnið Vala – Hrannar Smári Hilmarsson
10:23 - Krónur í korni – rekstrarhagkvæmni kornræktar - Jón Björn Blöndal
10:40 – Hvaðan er íslenska byggið? - Gunnhildur Gísladóttir
10:50 - Spurningar úr sal og umræður
11:00 - Kaffipása og veitingar
11:15 - Stöðugt bygg í óstöðugum umhverfum – Anna Guðrún Þórðardóttir
11:25 - Nákvæmnisbúskapur - Unnsteinn Snorri Snorrason
11:40 – Tilfærsla niturs yfir vaxtartímann í byggi – Sunna Skeggjadóttir
11:50 - Spurningar úr sal og umræður
12:00 - Hádegishlé
13:00 - Tilraunir skoðaðir og niðurstöður kynntar í akri
Kornþingið er kjörinn vettvangur fyrir bændur, fræðafólk og alla þá sem láta sig kornrækt og landbúnað á Íslandi varða.