• Forsíða
  • Fréttir
  • Hvernig vilt þú búa? – Taktu þátt í könnun um tengsl þéttingar byggðar og lífsgæða
Hvernig vilt þú búa? – Taktu þátt í könnun um tengsl þéttingar byggðar og lífsgæða
02.11.2026
Mynd sem tengist textanum

Íbúum á höfuðborgarsvæðinu, 18 ára og eldri, er boðið að svara könnun um búsetu, upplifun af búsetuumhverfi og ferðavenjur.

Könnunin tekur um 10–15 mínútur. Hún er á íslensku og ensku.

Könnunin er aðgengileg hér.

Um rannsóknina

Með könnuninni er leitað eftir sjónarmiðum íbúa um búsetuumhverfi sitt, hvað þeim finnst mikilvægt í daglegu lífi og hvaða breytingar þeir telja æskilegar eða síður æskilegar. Niðurstöðurnar munu nýtast til að efla þekkingu á því hvaða viðmið ætti að hafa að leiðarljósi við framtíðarskipulag byggðar og samgangna við íslenskar aðstæður.

Nánari upplýsingar um verkefnið eru á vef Landbúnaðarháskóla Íslands.

Könnunin er á vegum Dr. Hörpu Stefánsdóttur, prófessors í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands, í samstarfi við Dr. Johönnu Raudsep við Háskóla Íslands.