Heimsókn finnska sendiherrans á Hvanneyri
30.09.2026
Mynd sem tengist textanum

Landbúnaðarháskóli Íslands hafði ánægju af að taka á móti finnska sendiherranum á Íslandi, Ville Cantell, á Hvanneyri í síðustu viku.

Í heimsókninni kynnti sendiherrann sér fjölbreytta rannsóknastarfsemi háskólans, aðstöðu til kennslu og rannsókna, sem og námsframboð skólans.

LBHÍ er í öflugu samstarfi við finnska háskóla og rannsóknastofnanir, meðal annars í gegnum okkur EnCHiL mastersnám, UNIgreen Alliance háskólasamstarfsnet og hið rótgróna Nova University Network samstarfsnet norrænna háskóla.

Við hlökkum til að styrkja enn frekar samstarf okkar við finnska samstarfsaðila á komandi árum.

Við þökkum sendiherra Ville Cantell kærlega fyrir heimsóknina og áhugaverðar umræður!