• Forsíða
  • Fréttir
  • Gull á grunnsævi: Ráðstefna um tækifæri stórpörunga á Íslandi
Gull á grunnsævi: Ráðstefna um tækifæri stórpörunga á Íslandi
31.08.2026
Mynd sem tengist textanum

Þann 3. september næstkomandi verður þörungaráðstefnan „Gull á grunnsævi“ haldin í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi milli klukkan 15:00 og 17:30. Á ráðstefnunni verður sjónum beint að þeim fjölmörgu tækifærum sem felast í nýtingu og ræktun stórþörunga á Íslandi, hvort sem um er að ræða matvæli, fóður, áburð, lyf eða textílefni.

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, mun opna dagskrána formlega klukkan 15:00. Í kjölfarið tekur við þétt dagskrá stuttra kynninga þar sem sérfræðingar og forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana reifa fjölbreytt málefni tengd geiranum.

Meðal þess sem tekið verður fyrir á ráðstefnunni:

  • Rannsóknir og vísindi: Birkir Bárðarson (Röst) fjallar um óháðar vísindarannsóknir á ástandi hafsins og Lilja Gunnarsdóttir (Hafrannsóknastofnun) kynnir rannsóknir á þangi og þara.
  • Tækifæri í lækningu og matvælum: Svava Kristinsdóttir (Marimedx) ræðir rannsóknir á brúnþörungum í lækningaskyni og Eyjólfur Friðgeirsson (Íslensk hollusta) fjallar um þörunga sem matvæli.
  • Ræktun og fullvinnsla: Ástráður Sigurðsson (Lava Seaweed) kynnir landeldi á rauðþörungum, Bjarni G. Bjarnason (Hyndla) fjallar um sjálfbæra ræktun í borholusjó og Jóhann Magnússon (ISEA) ræðir sjálfbæra öflun og fullvinnslu.
  • Virðisaukning og ný tækifæri: Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir (Íslandsþari) og Ólafur H. Friðjónsson ásamt Rósu Jónsdóttur (Matís) fjalla um verðmætasköpun úr stórþörungum. Þá mun Alberte H. Bojesen ræða um þörunga sem textílefni.

Eftir kaffihlé og seinni hluta dagskrárinnar mun dr. Einar Mäntylä draga saman helstu erindi og niðurstöður klukkan 17:00. Parallel við dagskrána verða aðilar úr þörungageiranum með kynningarbása á staðnum þar gestir geta kynnt sér starfsemina nánar.