
Ný fræðigrein Ólafs Arnalds, prófessor emeritus við Landbúnaðarháskóla Íslands, varpar ljósi á glerjörð (Vitrisols), afar sérstæðan jarðveg sem einkennir íslenskar auðnir. Glerjörð þekur meira en 40% landsins og er því mikilvægur hluti flokkunar á íslenskum jarðvegi. Glerjörð myndast í lausum gosrænum efnum og inniheldur lítið af lífrænu kolefni. Hún er því frábrugðin eldfjallajarðvegi á grónu landi, sem safnar meira kolefni og hefur þróaðri jarðvegseiginleika.
Í íslenska flokkunarkerfinu skiptist glerjörð í melajörð, malarjörð, sandjörð og vikurjörð. Glerjörðin er sett í samhengi við alþjóðleg flokkunarkerfi og tilurð þróun eldfjallajarðar (Andisol) sem jarðvegsflokks er skýrð. Alþjóðleg flokkunarkerfi ná hins vegar ekki nægilega vel utan um sameiginleg einkenni glerjarðar á alþjóðavísu og þessi jarðvegsflokkur lendir að sumu leiti utangarðs. Í greininni er því lagt til að sérstakur flokkur, Vitrisol eða Tephrosol, verði tekinn upp í WRB-jarðvegsflokkunarkerfinu og lagðar til breytingar á bandaríska kerfinu (Soil Taxonomy). Slíkar breytingar gætu samræmt flokkun á virkum eldfjallasvæðum heimsins og einfaldað jarðvegskortagerð, sem og stutt við rannsóknir á jarðvegseyðingu og endurheimt vistkerfa.