Dr. Guðrún Óskarsdóttir hefur verið ráðin til LbhÍ sem lektor í endurheimt vistkerfa.
03.09.2026

Guðrún er gróðurvistfræðingur að mennt, nam landgræðslufræði (B.Sc.) og náttúru- og umhverfisfræði (M.Sc.) hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og vann síðar doktorsverkefni við Háskóla Íslands um viðgang og vistfræði birkistofnsins á Skeiðarársandi. Guðrún starfaði sem gróðurvistfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands í rúman áratug og sinnti þar m.a. langtímavöktunum á gróðri vegna mannvirkjaframkvæmda.
Guðrún hefur kennt námskeið í plöntuvistfræði við skólann frá árinu 2020 og komið að leiðbeiningu stúdenta í bæði grunn- og framhaldsnámi.
Við bjóðum Guðrúnu hjartanlega velkomna!