
Við bjóðum öllum að mæta á opna doktorsvörn Amir Hamedpour, nema í náttúru- og umhverfisfræði þann 27. nóvember nk. á Keldnaholti, Árleyni 22, Reykjavík og hefst klukkan 9:00. Vörninni verður einnig streymt á Teams. Vörnin fer fram á ensku.
Lokatitill: Fjölrása fjarkönnun á svörun graslenda við mismikilli jarðvegshlýnun
Leiðbeinendur Amir Hamedpour eru Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, Hafsteinn Einarsson, dósent við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands, Tryggvi Stefánsson, tæknistjóri Svarma ehf., Iolanda Filella, sérfræðingur við Centre for Research on Ecology and Forestry Applications (CREAF) við Autonomous University of Barcelona, og Steven Latré, prófessor við University of Antwerp.
Andmælendur eru Jón Atli Benediktsson, prófessor og fyrrum rektor Háskóla Íslands, og Torbern Tageson, sérfræðingur við Lund University.
Ágrip
Veðurfar hlýnar margfalt hraðar á norðurslóðum en að meðaltali á jörðinni og norðlæg graslendi hafa þegar byrjað að svara hlýnuninni með breytingum á tímasetningu grænunnar, tegundasamsetningu og framleiðni. Ýmiskonar fjarkönnun er í vaxandi mæli beitt til að fylgjast með slíkum breytingunum á náttúrunni, allt frá gervitunglagögnum um aukna eða minnkandi grósku á stórum svæðum á norðurslóðum til drónamynda í mikilli upplausn af einstökum vöktunarreitum. Einnig er mikilvægt að rannsaka hvernig frekari hlýnun mun halda áfram að breyta vistkerfum. Til þess má nota stýrðar hlýnunartilraunir úti í náttúrunni þar sem líkt er eftir framtíðar aðstæðum. Ein slík náttúruleg tilraun er ForHot-rannsóknasvæðið á Reykjum í Ölfusi, þar sem jarðhita-stiglar í berggrunni hafa hitað jarðveg graslenda mismikið og mislengi. ForHot er ein af um 18 vistkerfistilraunum í heiminum þar sem jarðvegur er hitaður niður á berggrunn.
Ritgerðin fjallar um svörun gróðurs við mismikilli og mislangri jarðvegshlýnun, og hvernig bæta má aðferðafræði fjarkönnunar við slíkar rannsóknir. Hún ber saman niðurstöður sem eru mældar með sífellt öflugri skynjurum: frá NDVI-handmælum, fjölrása drónamyndum í mikilli upplausn við hámark vaxtartímans og yfir allan vaxtartímann, til samþættingar litrófs- og hæðargagna til að meta lífmassa ofanjarðar.
Saman sýna greinarnar fjórar sem fylgja ritgerðinni að: i) vaxtarferlar graslendis bregðast línulega við því hve mikil hlýnunin er, ii) það hversu lengi hlýnunin hefur staðið hafði lítil áhrif og iii) að hlýnun eykur ljósnám gróðursins á vaxtartímanum einkum með því að færa vaxtartímann fram. Allar fjórar greinarnar sýna að valið á mælitækni (skynjara) og hvaða gróskustuðull er notaður við matið ráða miklu um hvaða hluti af svörun gróðurs við hlýnun sést.
Lykilorð: drónar; gróðurhæðarlíkan; loftslagsbreytingar; útskýranleg gervigreind; vaxtarferlar plantna; vélnám.