Benedikt Líndal fræddi nemendur um nálgun við unga hesta
21.10.2026

Benedikt Líndal heimsótti nemendur í tamninganámi við Landbúnaðarháskóla Íslands og hélt fyrir þeim fróðlegan og skemmtilegan fyrirlestur um nálgun við unga hesta. Fyrirlesturinn var bæði í máli og myndum og gaf nemendum innsýn í mikilvægi þess að nálgast unga hesta af þolinmæði, skilningi og fagmennsku.