Aukið virði landbúnaðarafurða - Hvað getur Ísland gert?
22.12.2017
Mynd sem tengist textanum

Landbúnaðarháskóli Íslands, Samtök ungra bænda og Matís bjóða til opins fundar um landbúnaðarmál í Ásgarði 24. október nk. Fulltrúum allra framboða sem bjóða lista til alþingiskosninga, verður boðið að kynna framtíðarsýn flokkanna í landbúnaðarmálum. Allir sem áhuga hafa á framgangi landbúnaðar eru hvattir til að koma, ræða við frambjóðendur og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Dagskrá

19:30 Velkomin Einar Freyr Elínarson, formaður SUB

19:35 Öflugur LbhÍ gegnir lykihlutverki í verðmætasköpun í landbúnaði Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ

19:45 Hvað getur íslenskur landbúnaður lært af verðmætasköpun í sjávarútvegi? Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís

19:55 Fulltrúar framboða kynna hvað þeir ætla að gera fyrir aukna verðmætasköpun í landbúnaði

20:40 Kaffihlé

20:45 Frambjóðendur svara spurningum úr sal

21:00 Fundi slitið

Fundarstjóri: Auður Magnúsdóttir, deildarforseti auðlinda- og umhverfisdeildar LbhÍ. Boðið verður uppá kaffi og meðlæti.

Hægt verður að fylgjast með fundinum á netinu þar sem honum verður streymt í gegnum Facebook síðu Samtaka ungra bænda.

Auglýsing