- Forsíða
- Rannsóknir
- Innviðir
- Sauðfjárbú - Hestur
Tilraunabúið á Hesti
Sauðfjárbú
Á Hesti í mynni Lundareykjadals er rannsóknarbú fyrir sauðfé og er það eitt fremsta sauðfjárbú í landinu í dag. Þar fer fram verkleg kennsla í sauðfjárrækt.
Fjármeistar er Heiðar Árni Baldursson

Starfsfólk á Hestbúinu
.
Halldór Pálsson 1944-1962
Pétur Gunnarsson 1963-1973
Björn Sigurbjörnsson 1973-1983
Gunnar Ólafsson 1983-1985
Þorsteinn Tómasson 1985-2005
Ágúst Sigurðsson 2005-2014
Björn Þorsteinsson 2014-2017
Sæmundur Sveinsson 2017-2018
Ragnheiður Þórarinsdóttir 2019-
Halldór Pálsson 1944 - 1981
Stefán Sch. THorsteinsson 1981 - 2001
Emma Eyþórsdóttir 2001 - 2020
Jóhannes Sveinbjörnsson 2020 - núverandi
Páll Jónsson 1944 - 1947
Guðmundur Pétursson 1947 - 1960
Einar E. Gíslason 1960 - 1974
Þorgeir Vigfússon 1974 -1975
Jón Snæbjörnsson 1975 - 1978
Jón Halldórsson 1978 - 1983
Árni Jónsson 1983 - 1988
Sigvaldi Jónsson 1988 - 2010
Lárus Pétursson 2011 - 2015
Snædís A. Þórhallsdóttir 2015 - 2018
Helgi Hálfdánarson 2015 - 2018
Logi Sigurðsson 2019 - núverandi
Stefán Aðalsteinsson 1955 - 1961
Stefán Sch. Thorsteinsson 1963 - 1964
Ólafur Guðmundsson 1966 - 1968
Hallur Jónsson 1970 - 1973
Jón Viðar Jo´nmundsson 1971
Þorgeir Vigfússon 1973 - 1974
Pétur Sigtryggsson 1974 - 1979
Sigurgeir Þorgeirsson 1976 - 1991
Guðrún Stefánsdóttir 1984 - 1988
Emma Eyþórsdóttir 1991 - 2001
Ingi Garðar Sigurðsson 1991 - 2001
Sigurður Þór Guðmundsson 2004 - 2005
Eyjólfur Kristinn Örnólfsson 2001 - núverandi
Pétur Gauti Pétursson, Gautlöndum 1944-1945
Sæmundur Sigurtryggvason, Mývatnssveit 1944-1946
Ingvar Ingvarsson, Múlastöðum
Guðmundur Ingimarsson, Efri-Reykjum 1946-
Arnljótur Sigurðsson, Arnarvatni 1945-1946
Sverrir Vilbergsson, ?? 1946-1947
Árni Jónsson, Hlíðarendakoti
Ásgeir Gestsson Kaldbak
Hákon Aðalsteinsson, Vaðbrekku
Sigrún Áradóttir, Gullberastöðum
Birgir Hartmannsson, Litla-Ármóti
Guðmundur Ásmundsson, Lundi
Halldór Bjarnason, Borgarnesi
Jónas Jónasson, Grenjum
Erlendur Sigtryggsson, Hreimsstöðum
Ármann Jónasson, Borgarnes 1963-1964 frá Grenjum
Páll Pálsson, Hraunsnefi
Gísli Ragnarsson, Efri-Hundadal 1965-1966
Dagbjartur Dagbjartsson, Hrísum 1965-1966
Gísli Erlendur Sigmundsson, Hreimsstöðum 1965-1966
Stefán Manasessson, Barká, 1965-1966
Guðmundur Finnsson, Hóli 1966-1970 og 1973-1974
Guðjón Sigurðsson, Selfossi var fjölda vora á sauðburði kringum 1970
Ólafur Benediktsson, Reykjavík (frá Hólmavík) um 1970
Leifur Sigurðsson, Kvígsstöðum 1977-1978
Jómundur Hjörleifsson, Heggsstöðum 1976-1977
Ragnheiður Hjörleifsdóttir, Dýrastöðum 1977-1978
Þorvaldur Kristjánsson, Hvítárholti
Þórhallur Teitsson, Grímarsstöðum 1977-1978
Björn Jóhannesson, Ásum
Þórir Ólafsson, Bæ
Sigurður Guðmundsson, Kolsstöðum
Eiður Hilmarsson, Búlandi
Hjalti Oddsson, Vörðufelli 1970-1972
Sigurður Halldórsson , Gullberastöðum 1966-1968
Jón Halldórsson, frá Krossi, Danmörk 1970-1973
Guðmundur Grétar Guðmundsson, Kirkjubóli 1974-1976
Magnús Halldórsson, Hvolsvelli 1974-1975
Guðmundur Garðar Guðmundsson, Reykjavík 1974-1975
Guðmundur Ómar Sverrisson, Danmörku
Leifur Helgason, Bæ
Sigurbjörn Björnsson,Lundum 1980-1981
Bjarni Bjarnason, Hlíð 1975-1976
Ásta Sigurðardóttir, Þingmúla 1975-1976
Björn Magni Björnsson, Egilsstöðum 1975-1976
Stefán Þór Sigurðsson, Akranesi 1975-1976
Sigmundur Sigurðsson, Lyngási (Steinadal)
Sigvaldi Jónsson, Hægindi 1982-1988
Árni Ingvarsson, Skarði 1978-1980
Tómas Sigurðsson , Kópavogi
Ármann ____________ , Kópavogi
Loftur Ingason, Kópavogi
Jóhannes Steinsson, Krossi
Eggert Páll Helgason, Bæ
Elva Björk Jónmundsdóttir, Arnþórsholti 1982-1983
Snorri Sturluson, Kletti 1982-1983
Jóna Kristinsdóttir, Kletti 1982-1983
Ásta Þorbjörnsdóttir, Grjótá
Gísli Einarsson, Lundi
Ágústa Sigurjónsdóttir, Danmörku
María Eggertsdóttir, Haukagili
Soffía Björg Egilsdóttir, Brennu
Jón Þór Þorvaldsson, Innri-Skeljabrekku
Kristinn Ágúst Sigurlaugsson, Seljalandsskóla
Björg María Þórsdóttir, Hægindi
Þorkell Þórðarson, Hvanneyri
Sigurborg Hanna Sigurðardóttir, Oddsstöðum
Ástrós Ýr Eggertsdóttir, Kálfholti
Sverrir Geir Guðmundsson, Giljahlíð
Þorgeir Pálsson, Húsavík 1944-1946
Droplaug Pálsdóttir, Hesti 1944-1946
Gyða Bárðardóttir, Hesti 1944-1946
Pétur Gauti Pétursson, Gautlöndum 1944
Sigurgeir Pétursson, Gautlöndum 1945
Sæmundur Sigurtryggvason, Mývatnssveit 1944-1946
Jón Þorkelsson, Bretlandi 1944
Ólavur Sörensen, Færeyjum 1945
Páll Hannesson, Undirfelli 1945
Jón Jónsson frá Asparvík, Skagaströnd 1945
Arnbjörn ?? 1946
Sigrún Árnadóttir, Gullberastöðum
Jón Oddsson, Kolviðarnesi
Eygló Einarsdóttir, Hesti
Vigfús Pétursson, Reykjavík 1972
Anna Margrét Stefánsdóttir, Hátúni
Rúnar Hálfdánsson, Þverfell 1969
Björn Jóhannesson, Ásum 1969
Hólmfríður Pálsdóttir, Reykjavík kringum 1970 nokkur ár
Ólafur Haraldsson, Reykjavík 1968-1969
Sigurður Halldórsson , Gullberastöðum 1966-1969 1971
Leifur Sigurvin Helgason, Selfossi 1979-1980
Aðalsteinn Hákonarson, Rangá
Ásmundur Pálmason, 1980
Ásdís Sigurjónsdóttir, Syðra-Skörðugili 1970-
Björn Brynjólfur Björnsson, Reykjavík 1975
Björgvin Björgvinsson, Reykjavík, 1975
Sigrún Jónasdóttir, Reykjavík 1975
Unnur Steina Björnsdóttir, Reykjavík, 1975
Björn Þorsteinsson, Hvanneyri 1976
Páll Guðmundsson, Húsafell 1976
Jómundur G. Hjörleifsson, Heggsstöðum 1974-1976
Arndís Pétursdóttir, Velli 1979
Sigurlína Jóhannesdóttir, Snartarstöðum
Ragnheiður Hjörleifsdóttir, Heggsstöðum 1974-1976
Ingibjörg Bragadóttir, á árum Jóns S.
Magnús Guðjónsson, Keflavík
Jón Halldórsson, Krossi 1968-1970
Gísli Gíslason Hálsi 1981
Trausti Guðmundsson, Reykjavík
Arnbjörg Sverrisdóttir, Noregi
Benedikt Líndal, Reykjavík
Jóna Eggertsdóttir nágrenni Akranes
Axel Hilmarsson, Reykjavík
Snorri Hilmarsson, Reykjavík
Pétur Hilmarsson, Reykjavík
Ásmundur Örnólfsson, Sigmundarstöðum 1985-1986
Erla Örnólfsdóttir, Sigmundarstöðum 1983
Þorsteinn Bergsson, Refstað 1988
Einar Örnólfsson, Sigmundarstöðum 1990, 1994, 1995
Eyjólfur K. Örnólfsson, Sigmundarstöðum 1994-1996
Sigurður Laxdal Einarsson, Iðunnarstöðum 1994-1995
Hallgrímur Sveinsson, Vatnshömrum 1994
María Eggertsdóttir , Haukagili 1990 1995
Jón Þór Þorvaldsson, Skeljabrekku 1996-1997
Helgi Hjörleifsson, Akranesi 1996
Steinunn Fjóla Benediktsdóttir, Mófellsstaðakoti
Jón Axel Jónsson, Borgarnesi
Gísli Einarsson, Lundi
Brynjólfur Einarsson, Lundi
Soffía E. Egilsdóttir, Brennu 1988-
Óðinn Ö. Jóhannsson, Selfossi
Þórdís Sigurðardóttir, Sólheimagerði
Ísgeir Hauksson, Hvanneyri
Sigurborg Hanna Sigurðardóttir, Oddsstöðum
Ástrós Ýr Eggertsdóttir, Kálfholti
Guðfinna Guðnadóttir, Grænavatni 1943-1947
Snjólaug Guðnadóttir, Grænavatni 1943-1947
Guðrún Símonardóttir, Hesti 1947-1960
Alda Einarsdóttir, Hesti 1965-1966 og líklega oftar
Steinunn Benediktsdóttir, Miðskeri 1965-1966
Rut Benjamínsdóttir, Ystu-Görðum 1966-1967
Ingibjörg Jónsdóttir , Snorrastöðum 1967-1968
Elín Þorsteinsdóttir, Vörðufelli 1971-1972
Emma Eyþórsdóttir, Reykjavík 1973 og 1974
Hildur Valgeirsdóttir, Reykjavík 1974-1975
Sigríður Einarsdóttir, Báreksstöðum 1961-1962 1975-1978
Helga Ólafsdóttir, Hvítárbakka 1976-1977
Dagmar J. Eiríksdóttir, Reykjavík 1979
Elín Áradóttir, Akranesi 1980
Jófríður Leifsdóttir, Hvanneyri 1981-1982
Karí Berg Gullberastöðum 1985-1986
Erla Örnólfsdóttir, Sigmundarstöðum 1983
Sigríður Jónsdóttir, Arnarholti 1988-1989
Guðríður Júlíusdóttir, Raftholti 1990
Soffía Eyrún Egilsdóttir, Brennu
Ástríður Sigurðardóttir, Oddsstöðum1994
Brynja Birgisdóttir, Hveragerði 1996
Sigrún Sigurðardóttir, Krossi
Eygló Óskarsdóttir, Krossi
Ása Hlín Svavarsdóttir, Reykjavík 1997 og 1999

Ritgerðir tengdar Hestbúinu
.
Sigurjón Jónsson Bláfeld 1970. Fóðurkál og áhrif þess á sláturlömb.
Stefanía Birna Jónsdóttir 1989. Áhrif útigöngu á fóðurnotkun, þrif og afurðasemi áa
Guðrún Lárusdóttir 1991. Burðartími, vor- og haustmeðferð sauðfjár; áhrif á hagkvæmni í búrekstri.
Ólöf Björg Einarsdóttir 1993. Notkun ómmælinga við mat kjötgæða í afkvæmarannsóknum.
Ásta F. Flosadóttir 1999. Áhrif progesteronsvampa og hvíta erfðavísisins á upphaf gangmála að hausti.
Óðinn Örn Jóhannsson 2001. Áhrif lambafeðra á þunga og vefjavöxt við mismunandi beitarmeðferðir.
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir 2003. Athugun á atferli íslenskra áa og lamba fyrst eftir burð: samskipti og tengslamyndun.
Hallfríður Ósk Ólafsdóttir 2003. Sumarbeit sauðfjár á ræktuðu landi.
Sigríður Jóhannesdóttir, 2003. Áhrif lýsingar á þrif lamba í innifóðrun.
Sigurður Þór Guðmundsson 2004. Fjárhúsgólf – samanburður sex gólfgerða.
Martha Sigríður Örnólfsdóttir, 2004. Fitumat á síðu á lifandi lömbum.
Ragnar Skúlason, 2005. Skyldleikarækt sauðfjár (Hestur og Þistilfjörður).
Silja Sigurðardóttir, 2010. Skiptibeit hrossa og sauðfjár.
Vilborg Hjördís Ólafsdóttir, 2009. Hefur ormalyfsgjöf áhrif á vöxt lamba?
Birta Berg Sigurðardóttir, 2011. Samhengi milli fæðingarþunga og vaxtarhraða hjá lömbum.
Einar Kári Magnússon, 2009. Áhrif útivistar á seinni hluta meðgöngu á burðarerfiðleika sauðfjár.
Eygló Gunnlaugsdóttir, 2011. Tengsl vaxtarlags og burðarerfiðleika hjá sauðfé.
Kristbjörn H. Steinarsson, 2012. Lambadómar - samræmi í mælingum og dómum.
Antónía Hermannsdóttir, 2013. Afdrif og þrif fósturlamba.
Ingibjörg Ásta Guðmundsdóttir, 2014. Umhverfisáhrif á haustþunga lamba.
Hrafnhildur Tíbrá Halldórsdóttir 2015. Byggfóðrun gemlinga.
Linda Sif Níelsdóttir, 2014. Áhrif þess að halda gemlingum á endingu og æviafurðir.
Pálína Pálsdóttir 2018. Burðarerfiðleikar sauðfjár.
Sigríður Linda Þórarinsdóttir 2016. Fósturlát í gimbrum: Samhengi fósturláta og vaxtarhraða.
Kara Lau Eyjólfsdóttir 2017. Mjólkurfóðrun lamba.
Sigríður Þorvaldsdóttir 2017. Tengsl ómfitu við fullorðinsþunga, holdastigun og afurðasemi áa.
Hafrún Huld Hlinadóttir 2018. Vorþungi lamba sem mat á mjólkurlagni áa.
Þórdís Karlsdóttir, 2018. Áhrif þess að ær skili lambi veturgamlar á afurðir þeirra síðar á ævinni.
Teitur Sævarsson 2020. Erfðabreytileiki í ASIP geninu í íslensku sauðfé
Linda Rún Einarsdóttir 2022. Áhrifaþættir á fallprósentu hjá íslenskum lömbum.
Þorgerður Gló Tómasdóttir 2022. Samanburður á þroskaferli áa eftir því hvort þær eru geldar eða með lambi veturgamlar.
Þórey Bjarnadóttir 2006. Sumarbeit sauðfjár á ræktuðu landi og fóðurkáli.
Hallfríður Ósk Ólafsdóttir 2012. Energy and protein nutrition of ewes in late pregnancy.
Ólöf Ósk Guðmundsdóttir 2015. Genome-wide association study of muscle traits in Icelandic sheep.
Ólafur Rúnar Dýrmundsson (1969). Breeding from ewe lambs with special reference to Icelandic sheep. B.Sc. Honours aðalritgerð, 74 bls., University College of Wales, Aberystwyth.
Sigurgeir Þorgeirsson 1976. Some effects of including cannon bone length in ram selection procedures in
Iceland. B.Sc. Honours aðalritgerð, 101 bls., University of Edinburgh.
Sigurgeir Þorgeirsson 1981. Growth and development of Scottish Blackface and Icelandic Sheep. Ph.D. Thesis. University of Edinbourgh.
Ólöf Björg Einarsdóttir, 1998. The use of probes to predict the composition of Icelandic lamb carcasses. M.Sc. Thesis. Sveriges Lantbruksuniversitet.
Jóhannes Sveinbjörnsson, 1998. Systems for sheep production in Iceland. M.Sc. thesis, Sveriges Lantbruksuniversitet.

Ættmæður hrúta frá Hesti
Hér að neðan sjást hverjar eru ættmæður þeirra hrúta frá búinu á Hesti, sem notaðir hafa verið á stöðvunum. Þarna er um að ræða í hvaða á ætt hrútsins í beinan móðurlegg rekur sig. Sáralítið hefur verið um kaup á ám inná búið þannig að í meginatriðum er þarna um fjáraskiptaær að ræða.
Straumur 61-823 Gála 51-022 frá Höllustöðum
Hrotti 64-824 Teista 51-025 frá Höllustöðum
Eldur 67-829 Háleit 51-114 frá Hamri
Angi 68-875 Augabót 51-212 frá Vatnsdal
Moli 70-869 Askja 51-210 frá Kvígindisfelli
Funi 70-880 Bryðja 51-002 frá Skerðingsstöðum
Ófeigur 71-855 Gerður 51-049 frá Múla
Soldán 71-870 Snekkja 51-142 frá Kinnastöðum
Fursti 71-871 Rák 51-219 frá Vatnsdal
Knútur 72-872 Sæunn 51-261 frá Sæbóli
Klettur 72-876 Skúfa 51-105 frá Skjaldfönn
Hængur 72-889 Dúfa 51-020 frá Höllustöðum
Köggul 73-877 Molda 51-035 frá Sveinseyri
Vængur 74-920 Gála 51-022 frá Höllustöðum
Fjári 74-936 Snekkja 51-142 frá Kinnastöðum
Ráðsnjall 81-991 Kempa 51-130 frá Kinnastöðum
Þjónn 81-992 51-148 frá Kinnastöðum
Gýgur 81-993 Gála 51-022 frá Höllustöðum
Stúfur 81-994 Gála 51-022 frá Höllustöðum
Snáði 82-800 Snekkja 51-142 frá Kinnastöðum
Djákni 82-801 Augabót 51-212 frá Vatnsdal
Sólnes 82-802 51-227 frá Brekku á Ingjaldssandi
Kain 82-803 Teista 51-025 frá Höllustöðum
Eitill 82-804 Kempa 51-130 frá Kinnastöðum
Aron 83-825 Gála 51-022 frá Höllustöðum
Dvalinn 83-826 Snekkja 51-142 frá Kinnastöðum
Strammi 83-833 Væn 51-015 frá Miðjanesi
Sami 85-868 Teista 51-025 frá Höllustöðum
Stubbur 85-869 Stíf 60-838 (aðfengin)
Kokkur 85-870 Háleit 51-114 frá Hamri
Dallur 85-877 Gála 51-022 frá Höllustöðum
Krákur 87-920 Væn 51-015 frá Miðjanesi
Fóli 88-911 Férák 51-215 frá Vatnsdal
Reki 89-925 Álka 51-077 frá Laugabóli
Galsi 88-929 Mygla 54-819 (aðfengin)
Keli 89-955 Teista 51-025 frá Höllustöðum
Deli 90-944 Augabót 51-212 frá Vatnsdal
Gosi 91-945 51-227 frá Brekku Ingjaldssandi
Stikill 91-970 Askja 51-210 frá Kvígindisfelli
Fenrir 92-971 Freydís 51-116 frá Hamri
Hörvi 92-972 Férák 51-215 frá Vatnsdal
Húnn 92-809 Bylta 51-241 frá Miðhúsum
Bútur 93-982 Jökla 51-016 frá Miðjanesi
Kúnni 94-997 Sníkja 51-051 frá Arngerðareyri
Svaði 94-998 Férák 51-215 frá Vatnsdal
Bjálfi 95-802 Bót 51-207 frá Kvígindisfelli
Mölur 95-812 Askja 51-210 frá Kvígindisfelli
Sónn 95-842 Jökla 51-016 frá Miðjanesi
Sekkur 97-836 Jökla 51-016 frá Miðjanesi
Náli 98-870 Freydís 51-116 frá Hamri
Áll 00-868 Sníkja 51-051 frá Arngerðareyri
Lóði 00-871 Eyrarós 51-242 frá Eyri
Hylur 01-883 Gátt 51-070 frá Arngerðareyri
Gári 02-904 Kúpa 51-120 frá Kinnastöðum (kollótt)
Ós 02-905
Frosti 02-913 Askja 51-210 frá Kvígindisfelli
Kuldi 03-924 Askja 51-210 frá Kvígindisfelli
Gaddur 04-950 Gála 51-022 frá Höllustöðum
Mímir 04-951 Gála 51-022 frá Höllustöðum
Bramli 04-952 Gátt 51-070 frá Arngerðareyri
Kveikur 05-965 Askja 51-210 frá Kvígindisfelli
Raftur 05-966 Bylta 51-242 frá Miðhúsum
Bifur 06-994 Jökla 51-016 frá Miðjanesi
Bjálki 06-995 Bylta 51-242 frá Miðhúsum
Þráður 06-996 Væn 51-015 frá Miðjanesi
Dökkvi 07-809 Askja 51-210 frá Kvígindisfelli
Freyðir 07-810 Bylta 51-242 frá Miðhúsum
Mjöður 07-811 Tunga 51-064 frá Arngerðareyri
Prjónn 07-812 Gála 51-022 frá Höllustöðum
Borði 08-838 Freydís 51-116 frá Hamri
Hólmi 08-839 Sæunn 51-261 frá Sæbóli
Máni 09-849 Augabót 51-212 Vatnsdal
Snævar 10-875 Sæunn 51-261 Sæbóli
Drífandi 11-895 Bót 51-207 frá Kvígindisfelli
Bekri 12-911 Bylta 51-242 frá Miðhúsum
Bursti 12-912 Sæunn 51-261 Sæbóli
Skratti 12-913 Teista 51-025 frá Höllustöðum
Vetur 12-914 Grásnoppa 51-154 frá Kinnastöðum
Hvati 13-826 Férák 51-215 frá Vatnsdal
Hroki 15-969 Golsukolla 51-112 frá Hamri
Dímon 16-993 Grásnoppa 51-154 frá Kinnastöðum
Durtur 16-994 Sníkja 51-051 frá Arngerðareyri
Drjúgur 17-808 Férák 51-215 frá Vatnsdal
Glæpon 17-809 Gátt 51-071 frá Arngerðareyri
Köggull 17-810 Férák 51-215 frá Vatnsdal
Kofi 18-833 Férák 51-215 frá Vatnsdal
Rammi 18-834 Askja 51-210 frá Kvígindisfelli
Svörður 18-854 84-433, Reykhólum
Austri 19-847 Gála 51-022 frá Höllustöðum
Galli 20-875 Gála 51-022 frá Höllustöðum
Gimli 20-876 Sæunn 51-261 frá Sæbóli
Strokkur 21-898 Golsa 51-260 frá Litlabæ
Jór 23-931 Gála 51-022 frá Höllustöðum
Höfundur: Jón Viðar Jónmundsson
Fyrir fjárskipti Hesti - Hrútaskrá úr fjárbók
Hér eru upplýsingar um þá 56 hrúta sem Halldór Pálsson skráir í fjárbækur Hestsbúsins fyrir fjárskiptaniðurskurðinn haustið 1950. Ljóst er að einhverja skotablendingshrúta (ath. þrjú kyn á Hesti) aðkeypta vantar. Mögulega seldir eftir notkun lambsveturinn. Dæmi um þannig bókhald hjá honum eftir fjárskiptin.
Höfundur: Jón Viðar Jónmundsson, 2024
- Blær frá Guðlaugsstöðum fæddur 1943. Slátrað vegna mæðiveiki 1949. Faðir Blær 3 og móðir Þétt 154 bæði á Guðlaugsstöðum. Mjög mikið notaður og fjöldi dætra til á Hesti. Þær virðast hafa þolað mæðiveiki allvel. Halldór talar um hann í bréfi til Páls bústjóra sem einn almesta kynbótahrút landsins
- Hallur frá Höllustöðum fæddur 1943. Slátrað 1945 vegna afleiðinga hornbrots. Því aðeins einn vetur í notkun. Nokkrar dætur sem entust illa. Hvítur og hyrndur eins og fram er komið.
- Klaki frá Kleifum fæddur 1943. Notaður einn vetur. Lánaður að Mófellsstöðum einn vetur en 1947 seldur að Svignaskarði þar sem honum var slátrað 1950. 18 ær á Hesti sem entust þokkalega. Hvítur, kollóttur.
- Öngull frá Ásgarði fæddur 1943. Mikil verðlaunakind, fyrstu verðlaun 1947, en var slátrað mæðiveikum haustið 1950. Var af Ásgarðskyni, Kleifafjár, en það þótti sérlega þroskamikið. Faðir Öngull undan Kolli frá Ólafsdal. Sífellt vaxandi notkun á Hesti og aukinn ásetningur með árunum. Dætur því allmargar og entust. Hvítur, hníflóttur.
- Höttur frá Guðlaugsstöðum fæddur 1943. Kom frá Guðlaugsstöðum af því þekkta fé en samkvæmt ættfærslu blandaður forystufé. Faðir Girðir 5 og móðir Svartkápa 68. Svarthöttóttur, hyrndur. Kemur veturgamall að Hesti og seldur 1946 að Efri-Brú í Grímsnesi. Sáralítið notaður á Hesti en örfáar dætur síðar keyptar á Guðlaugsstöðum.
- Kolur frá Gottorp fæddur 1943. Kemur fullorðinn 1946 og slátrað mæðiveikum í árslok og því mjög takmarkað notaður. Var blákolóttur og hyrndur.
- Klaufi frá Kleifum fæddur 1944. Faðir Lambi. Kom veturgamall að Hesti og aðeins notaður. Dætur hátt í 20 en grisjuðust talsvert. Hvítur, kollóttur.
- Gilli frá Gillastöðum 1944. Önnur verðlaun á sýningu 1947 og þá seldur í Varmalæk. Fáar dætur.
- Geir frá Arnarvatni fæddur 1942 á Kálfaströnd. Þriðju verlauna hrútur og takmarkað notaður. Koma að Hesti 1945 og slátrað ári síðar.
- Gítar frá Grænavatni fæddur 1944. Ætt frá Grænavatni, Helluvaði og Baldursheimi. Faðir Draupnir og móðir Dama. Slátrað 1946 mæðiveikum. Átti tvær dætur sem lifðu.
- Spakur frá Arnkötludal fæddur 1939. Ætt óþekkt. Halldór taldi hann besta kollótta einstakling á fyrri helmingi aldarinnar hér á landi. Notaður til sæðinga mest á Snæfellsnesi. Erfði gula kjötfitu. Seldur að Gilsbakka 1948. Frekar fáar dætur á Hesti.
- Krókur frá Guðlaugsstöðum fæddur 1942. Eigandi á Guðlaugsstöðum Halldór Pálsson. Faðir Baldur frá Ólafsdal, móðir Svartkolla. Notaður eina fengitíð en drapst eftir böðun 1947. Dætur fáar.
- Blettur frá Veisu. Fæddur 1941. Ætt úr Kelduhverfi og lengra bak úr Öxarfirði. Kom líklega að Hesti 1946 og hlaut þar fyrstu verðlaun á hrútasýningu 1947. Um tugur dætra alinn. Slátrað 1949 þá hrumur af elli en fullkomlega heilbrigður.
- Skoti B.L. hrútur fæddur 1942. Áreiðanlega hjá Runólfi á Hvanneyri. Fékk fyrstu verðlaun 1947. Gríðarvænn. Seldur að Höfða í Eyjarhreppi Fáar dætur.
- Atli hreinn B.L. frá Hvanneyri fæddur 1946 og úr sæði frá Skotlandi og móðir BL ær á Hvanneyri. Drepinn af hrafni haustið 1948. Dætur 12 sem lifðu vel. Hvítur, kollóttur.
- Freyr ½ fæddur 1946 úr Chevíot sæði en móðir frá Gillastöðum. Slátrað 1948 og var þá allur aflagaður. Alinn á annan tug dætra sem entust þokkalega.
- Dvergur ½ fæddur 1946 á Fjarðarhorni úr Chevíot sæði en móðir Slikja 9. Honum slátrað 1947 og virðist hafa verið ræfilskind sem ekkert var alið undan. Hvítur, hníflóttur.
- Kambur ½ fæddur 1946 úr Cheviót sæði en móðir Egg 206 sem bar dóttir Blæs 43-001 frá Guðlaugsstöðum. Var lánaður veturgamall að Búrfelli í Grímsnesi. Engar dætur aldar á Hesti. Hvítur, stórhníflóttur.
- Höfði ½ fæddur 1946 úr Svarthöfðasæði, móðir grá ær frá Eiríki presti. Seldur að Úthlíð 1949. Hvítur með dökkan haus og fætur, hyrndur.
- Loki fæddur 1946 á Hesti og sagður þingeyskur án ættfærslu. Slátrað veturgömlum og engar dætur aldar.
- Njörður fæddur 1946 á Hesti og fær sömu umsögn og Loki 46-020.
- Þór fæddur 1946 og faðir Geir 42-009 frá Kálfaströnd, móðir Freyja 274. Honum slátrað 1948 og 2 dætur aldar.
- Hrani fæddur 1946 frá Jónasi Péturssyni á Hranastöðum og get mér til af Þórustaðafé sem var frægast þar á bæjum þá. Jónas varð síðar tilraunastjóri á Skriðuklaustri en fór að sögn Halldórs til ónytsamlegri starfa þegar hann settist á Alþingi sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins 1961. Halldór sagði líka að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra með fleiru hefði varað Jónas við að heimsækja Halldór. Hrani var 1948 seldur að Heggsstöðum og ekki aldar dætur hans á Hesti.
- Hlýri var fenginn lamb frá Magnúsi Lýðssyni á Hólmavík 1946. Hann var síðan seldur að Steðja 1948. Hlýri var örðuhníflóttur.
- Sál var fæddur 1945 á Breiðumýri en ættaður frá fjárræktarbúinu á Þórustöðum í Öngulsstaðahreppi og líklega skyldur Hrana 46-023. Þetta var fádæma vænn hrútur sem kemur að Hesti haustið 1947. Hann drapst úr mæðiveiki vorið 1950 og aldar 9 dætur á Hesti..
- Golíat var fæddur 1943 á Gillastöðum en seldur lamb að Borgum í Bæjarhreppi þar sem Halldór kaupir hann 1947. Áður hafði hann mætt á hrútasýningu á Kjörseyri 1945 og hreppt fyrstu verðlaun. Notaður á Hesti tvo vetur og alinn um tugur dætra. Honum slátrað haustið 1950 sennilega alheilbrigðum. Hann var smáhníflóttur, hvítur.
- Þráinn var fæddur á Kleifum 1944 en keyptur í Gröf í Óspakseyrarhreppi 1947 og áframseldur 1949 að Klausturhólum í Grímsnesi. Faðir Lambi. Aldar 9 dætur á Hesti. Kollóttur, hvítur.
- Funi fæddur 1944 á Stórhóli af Ólafsdalskyni og keyptur 1947 að Hesti þar sem hann er notaður einn vetur, engar dætur aldar á Hesti en Funi fer síðan í Engey í þá frægu björgunartilraun sem Halldór var þar með á þeim árum. Hvítur og kollóttur.
- Nafnlaus hrútur fæddur 1947 á Hesti faðir Blettur 41-013 frá Veisu, móðir Fjóla 62 frá Gottorp undan Koli 43-006. Halldór selur Guðmundi Péturssyni, bústjóra hrútinn en elur ekki dætur hans á Hestsbúinu. Af óskýrðum ástæðum alinn lambsveturinn á Gilsbakka.
- Prúður fædur á Guðlaugsstöðum 1947 og keyptur að Hesti lambið og var faðir hans Riddari og móðir Spjálkhyrntagrána 14 en þriggja kynslóða ættfærsla er í fjárbókinni. Notaður á Hesti til fjárskiptanna 1950 og þá slátrað alheilbrigðum. Aðeins aldar 3 dætur á Hesti. Hvítur, hyrndur.
- Hölluson fæddur 1947 faðir Öngull 43-004 frá Ásgarði móðir Halla 63 frá Höllustöðum í Blöndudal. Slátrað við fjárskiptin en samkvæmt hrútasíðu hans aðeins notaður síðasta árið og dætur því engar. Hníflóttur og gulur á haus.
- Smári frá Ólafsdal fæddur 1947 sonur Smára sem var á landbúnaðarsýningunni í Reykjavík það ár og Hjalti Gestsson kaupir þar og flytur að Hæl. Mikið notaður á Hesti einn vetur og alinn gimbrahópur sem var annar stóri hópurinn í rannsókninni um vöxt og þroska áa. Búið selur Smára í Hvítárvelli haustið 1949. Kollóttur og hvítur.
- Broddur fæddur í Broddanesi 1947. Engin ættfærsla en áreiðanlega dæmigerður kollóttur Kleifakynshrútur. Örfáar dætur aldar á Hesti en seldur 1949 að Indriðastöðum. Hvítur og kollóttur.
- Platón fæddur á Stóru-Laugum í Reykjadal 1947. Af suður-þingeysku kyni. Aðeins 1 ær alin á Hesti undan honum. Seldur veturgamall að Gilsbakka. Var golbíldóttur að lit og með horn.
- Laukur fæddur á Höllustöðum 1943. Seldur þaðan lamb að Fiskilæk þar sem Halldór fær hann 1948 og selur haustið eftir í Skálholt en ekki kunnugt hvort honum var slátrað þar eða grafinn í vígðri mold. Aðeins 3 dætur hans aldar á Hesti. Laukur var hvítur en gulur á haus og fótum, hyrndur.
- Grímur fæddur í Grímstungu 1948 og Halldór kaupir hann af móðurbróður sínum þá um haustið. Faðir hans hét Kjammi. Slátrað heilbrigðum niðurskurðarhaustið. Ein dóttir alin á Hesti. Hvítur og hyrndur.
- Goði fæddur á Valdalæk 1948 faðir Golsi og Halldór taldi áreiðanlega af Gottorpkyni. Kemur lamb að Hesti en seldur veturgamall í Súlunes. Aldar 8 gimbrar á Hesti. Hvítur, hyrndur, gulur á haus og fótum.
- Golsi fæddur á Valdalæk 1948 og kemur lamb að Hesti. Svartgoltóttur og hyrndur. Örlög hans ekki frekar rakin á hrútasíðu fjárbókarinnar.
- Sókrates fæddur á Hest 1948 faðir Platón 47-034 móðir Surtla 385. Ekki aldar dætur. Slátrað heilbrigðum niðurskurðarhaustið. Grábíldóttur, hyrndur.
- Muggur fæddur 1948 faðir Blær 43-001, móðir Mugga 57 en þau komu bæði frá Guðlaugsstöðum. Var ónýtur og slátrað mæðiveikum nálægt áramótum 1949-1950. Hvítur og hyrndur. Þrátt fyrir þetta fæddist undan honum eitt lamb á Hesti sem var slátrað.
- Baldur fæddur 1948 faðir Blær 43-001 frá Guðlaugsstöðum móðir 396 sem var undan Blæ 43-001 og Hélu 88 frá Kagaðarhóli. Slátrað veturgömlum þar sem hann reyndist ófrjór. Hvítur og hyrndur.
- Bjarki fæddur 1948 faðir Blettur 41-013 frá Veisu, móðir Björk 82 frá Guðlaugsstöðum. Notaður tvo vetur. Hvítur, hyrndur. Engar aðrar upplýsingar.
- Skolli fæddur 1948 faðir Þráinn 44-027 frá Kleifum móðir Röst 247 af Klefafé og Skolli skyldleikaræktaður útfrá Lamba á Klefum. Seldur í Eyvindartungu í Laugardal veturgamall. Hvítur, kollóttur.
- Svarthöfði fæddur 1948 ½ Svarthöfði. Faðir Hjörtur frá Hóli í Svarfaðardal (hrútur sem mynd er af í Frey 50 ára) móðir 401 dóttir Höfða 46-019 (nafnarugl í fjárbókinni). Notaður tvo vetur og slátrað í fjárskiptunum, heilbrigðum. Svarthöfðóttur, hyrndur.
- Teningur fæddur 1948 var ½ Faðir Freyr 46-017 frá Gillastöðum (1/2 C) og móðir 351 sem einnig var hálfblóðs úr sæði og Sunnur 24 frá Ásgarði. Notaður tvo vetur og slátrað heilbrigðum haustið 1950. Hvítur, örðuhnflóttur.
- Dóni fæddur 1948 faðir Varmi á Hvanneyri frá Varmalæk (½ BL) móðir 344 sem var BL hálfblendingsær frá Fossum. Átti tvo lambaárganga á Hesti og slátrað heilbrigðum haustið 1950. Hvítur og kollóttur.
- Sóði fæddur 1948 faðir Atli 46-015 frá Hvanneyri móðir Áma 303 frá Hvanneyri úr BL fénu þar. Því hreinn BL hrútur. Slátrað heilbrigðum 1950 en aðeins lömb undan honum síðara árið. Hvítur og kollóttur.
- Olli fæddur 1946 frá Hvanneyri úr sæði úr skoskum Svarthöfðahrúti og móðir Björt, því hálfblóðs. Kemur að Hesti haustið 1948 og drepst úr lungnabólgu eða lifrarbólgu sumarið 1949. Hvítur en dröfnóttur á haus og fótum, hyrndur.
- Hvanneyringur fæddur 1946 á Hvanneyri hreinn BL hrútur. Keyptur frá Hvanneyri haustið 1948 og slátrað kvíðrifnum haustið 1949. Aldar 4 gimbrar. Hvítur og kollóttur.
- Mac fæddur 1949 en ekki séð hvort hann var hreinræktaður BL vegna þess að faðerni hans í fjárbókinni er yfirstrikuð en ljóst að hann var hálfur eða hell BL en móðir hans Lýsa 313 var hreinræktuð BL ættuð frá Hvanneyri. Slátrað haustið 1950. Aðeins eitt lamb undan honum til nytja. Hvítur og kollóttur.
- Uggi fæddur 1949 faðir Svarthöfði 48-044 móðir 407 sem einnig var ½ Svarthöfði ættuð frá Fiskilæk. Líklega slátrað 1950. Aðeins 2 lömb undan honum. Svarthöfðóttur og líklega hyrndur þó að það sé ekki skráð.
- Amor fæddur 1949 faðir Öngull 43-004 frá Ásgarði og móðir Hind 294 frá Kleifum. Slátrað 1951 og hefur því farið í Engey. Átti 9 lömb á Hesti 1950. Hvítur, kollóttur.
- Óðinn fæddur 1949 faðir Smári 47-032 frá Ólafsdal móðir Kvika 360 undan Klaufa 44-007 frá Kleifum og Kviku 27 frá Kleifum. Átti 17 lamba hóp veturgamall. Slátrað þá heilbrigðum. Hvítur og kollóttur.
- Feldur fæddur 1949 faðir Smári 47-032 frá Ólafsdal, móðir Perla 173 undan Öngli 43-004 frá Ásgarði og á frá Höllustöðum. Átt 7 afkvæmi haustið 1950 og slátrað þá veturgömlum, heilbrigðum. Hvítur, örðuhníflóttur.
- Fífill fæddur 1949 faðir Laukur 43-035 frá Höllustöðum móðir Mugga 453 undan Blett 41-013 frá Veisu og á frá Guðlaugsstöðum. Vísbendingar í fjárbók um að hann hafi farið til Engeyjar. Átti ekki afkvæmi á Hesti. Hvítur og hyrndur
- Nökkvi fæddur 1949 faðir Goði 48-037 frá Valdalæk, móðir Kolbrún 395 undan Blæ 43-001 frá Guðlaugsstöðum og Fjólu 62 frá Gottorp. Átti 11 afkvæmi á Hesti haustið 1950 og virðist hafa farið til Engeyjar vegna þess að hann drapst úr bráðapest í nóvember. Hvítur og hyrndur.
Haustið 1943 var ásetningur samkvæmt fjárbók
9 ær frá Ásgeiri Jónssyni í Gottorp 3 veturgamlar og 6 eldri öllum slátrað vegna mæðiveiki og riðu að auki.
1 frá Guðmundi í Fjarðarhorni og var henni slátrað vegna mæðiveiki.
10 frá Vilhelm, Fossi, Hrútfirði og 7 þeirra slátrað mæðiveikum, allar hyrndar, óljóst hvaða ræktunarstofn (Gottorpfé?).
22 gimbrar frá ýmsum eigendum m.a. Halldóri Pálssyni á Guðlaugsstöðum af ýmsum uppruna en flestar af heimastofni, fjölbreyttar að lit, 20 féllu vegna mæðiveiki og ein vegna lungnabólgu.
14 gimbrar frá Höllustöðum 6 urðu mæðiveiki að bráð en margar hinna fremur skammlífar vegna ýmiskonar vanhalda
1 gimbur frá Litladal sem drapst úr bráðapest haustið 1947.
2 dökkar gimbrar frá Stóradal og önnur þeirra drapst úr mæðiveiki.
2 gimbrar frá prestinum á Auðkúlu, önnur kjálkabrotnaði 1949 en hina vantaði af fjalli 1944.
3 gimbrar frá Kagaðarhóli sem öllum var slátrað ungum vegna mæðiveiki.
5 gimbrar frá Bjargi í Miðfirði og 4 fargað vegna mæðiveiki.
1 gimbur frá Hrútatungu sem slátrað var haustið 1950 dauðvona af innanmeini.
8 gimbrar frá Ásgeiri í Gottorp sem allar nema ein urðu mæðiveikar en hún drapst vorið 1946 úr blóðeitrun eftir burð.
12 gimbrar frá Fjarðarhorni og aldurtili 10 mæðiveiki og önnur hinna skilaði aðeins einu lambi um ævina og hin engu, allar kollóttar og með afbrigðum ófrjósamar meðan þær tórðu.
10 gimbrar frá Davíð á Arnbjargarlæk sem allar utan ein urðu mæðiveiki að bráð.
1 gimbur frá dr Eiríki Albertssyni sem slátrað var 1947 vegna mæðiveiki.
4 gimbrar frá Ólafi Benónýssyni á Háafelli og féllu 3 vegna mæðiveiki 7 gimbrar frá Spákellsstöðum sem allar féllu sökum mæðiveiki.
7 gimbrar frá Víghólsstöðum og féllu 5 vegna mæðiveiki.
2 gimbrar frá Hróðnýjarstöðum sem báðar urðu mæðiveiki að aldurtila.
10 gimbrar frá Gillastöðum og urðu 7 mæðiveikar, allar kollóttar og frjósamar.
5 gimbrar frá Ásgarði í Hvammssveit og urðu 3 mæðiveikar, allar kollóttar.
12 gimbrar frá Kleifum í Gilsfirði og fengu 10 mæðiveiki og þær allar 12 kollóttar.
6 gimbrar frá Kleifum og fóru 5 vegna mæðiveiki en ein drapst ung ofaní dý.
17 gimbrar frá Gillastöðum og 11 þeirra urðu mæðiveikar en þessar ær lifðu greinilega flestum íslenskum betur.
11 gimbrar voru settar á heima og urðu 9 þeirra mæðiveikar, flestar þeirra undan sama föður dætur Önguls 4 frá Ásgarði.
10 gimbrar og 3 veturgamlar ær koma úr Suður-Þingeyjarsýslu
1 frá Bjarnstöðum í Bárðardal en hinar úr Mývatnssveit. 5 frá Grænavatni, 2 úr Baldursheimi og frá Helluvaði og 1 frá bæjunum Arnarvatni, Gautlöndum og Vogum. 7 þeirra fóru vegna mæðiveiki en hinum slátrað ungum eða fórust.
8 fullorðnar ær og 1 gimbur komu frá Indriðastöðum og fóru 7 þeirra vegna mæðiveiki margar orðnar rosknar, 1 drapst vegna riðu og sú síðasta drapst af slysförum.
7 gimbrar koma úr Bárðardal og Mývatnssveit, 5 frá Bjarnastöðum og sín hvor úr Vogum og Gautlöndum, 4 fóru vegna mæðiveiki en ein lifði til niðurskurðar 1950.
13 gimbrar frá Kleifum, aðeins 4 fóru vegna mæðiveiki en ein breyttist í hrút, sumar afbragðs afurðaær.
10 gimbrar frá Gilsbakka og allar sýktust af mæðiveiki.
2 gimbrar frá Magnúsi Lýðssyni á Hólmavík, önnur mæðiveik en hin drapst 1948 úr lifrabólgu.
54 gimbrar ásettar á Hesti og 26 þeirra urðu mæðiveiki að bráð og tvær drápust úr riðu. Þessar ær voru flestar dætur hrúta með lægstu númerin.
2 veturgamlar ær frá Þórustöðum sem báðar féllu vegna mæðiveiki einnig 2 gimbrar önnur mæðiveik.
12 fullorðnar ær frá Kleifum margt gamlar ær og batt mæðiveiki endi á feril helmings þeirra einnig 6 gimbrar og 1 varð mæðiveik.
1 veturgömul frá Magnúsi Lýðsyni á Hólmavík og batt mæðiveiki endi á feril hennar og 4 gimbrar sem fóru flestar af slysförum.
25 BL ær hreinkynja eða blendingar ær margar og óvíst um aldur líklega frá Hvanneyri.
6 ær frá Bjarnastöðum á breytilegum aldri og 8 gimbrar frá Nesi í Höfðahverfi. Aðeins 5 féllu vegna mæðiveiki en margar meistarar í að fyrirfara sér á ýmsa hátt og afurðir litlar.
16 gimbrar hálfblóðs Chevíót aðeins 4 fæddar á Hesti en flestar úr Leirár- og Melasveit og 9 úr þessum hópi luku ævi vegna mæðiveiki.
29 gimbrar heimaaldar. 20 þeirra undan Klaufa 7 frá Kleifum og 6 féllu vegna mæðiveiki og 1 úr riðu og önnur ung úr ræfildómi.
2 forystugimbrar frá Víðivöllum í Fnjóskadal og grandaði mæðiveiki annarri.
1 gimbur frá Hranastöðum sem var slátrað mæðiveikri 1950.
11 heimaaldar gimbrar bætast við og 5 þeirra fengu mæðiveiki
8 hálfblóðs gimbrar af Svarthöfðakyni. Helmingur fæddur á Hesti en hinar úr nágrenni og 1 varð mæðiveik.
1 gömul ær frá Valshamri sem slátrað var vegna mæðiveik 1949.
2 ær frá Ásgarði og annarri slátrað vegna mæðiveiki. Einnig 2 gimbrar alsystur undan Hrútamömmu, heilbrigðar en önnur kom aldrei upp lambi.
10 fullorðnar ær frá Kleifum og féll helmingur þeirra vega mæðiveiki.
7 ær frá Jóni Jónssyni í Broddanesi og réð mæðiveiki endadægri hjá 4 þeirra.
1 ær frá Gautsdal sem var slátrað þar sem hún átti ekkert lamb eftir að hún flutti að Hesti.
2 ær frá Ólafsdal sem flest nem mæðiveiki bagaði eftir flutning að Hesti.
2 ær frá Stórhóli sem báðar samkvæmt fjárbók fengu mæðiveiki önnur þó greind við lungnaskoðun eftir niðurskurð 1950.
1 ær frá Bakka í Geiradal sem ormar í lungum böguðu við niðurskurðinn.
5 gimbrar frá Hornsstöðum og urðu 2 mæðiveikar.
2 gimbrar frá Höllustöðum, önnur hjartveik.
5 gimbrar frá Guðlaugsstöðum, aðeins 1 varð mæðiveik.
51 gimbur heimaalin og batt mæðiveiki endi á líf 7 þeirra.
5 Svarthöfðablendingar, 2 af Chevíótnlöndu og 5 BL blendingar, ættfærsla góð og hjá íslensku gimbrunum voru allstórir hópar undan Klaufa 7 frá Kleifum, Spaki 11 frá Arnkötludal, Króki 12 frá Guðlaugsstöðum og Bletti 13 frá Veisu.
34 heimaaldar gimbrar með skosku blóði og 5 slátrað eða sýndu merki mæðiveiki, 5 Svarthöfðablendingar, 16 Chevíótblendingar og 13 BLblendingar.
10 gimbrar frá Marðarnúpi sem voru áberandi vænstar í tilrauninni um vöxt og þroska og 2 sýndu einkenni mæðiveiki.
10 gimbrar úr Grímstungu, einni slátrað vegna ræfildóms og önnur dó af sólbruna en engin mæðiveik.
10 ær frá Akri, sólbruni banaði einni og önnur greindist með mæðiveiki við niðurskurðinn.
10 gimbrar frá Valdalæk og helmingur sýndi mæðiveiki.
1 kollótt ær frá Ytri-Löngumýri sem lenti í niðurskurðinum.
Loks 45 heimaaldar gimbrar af íslenska sauðfjárkyninu 3 af þeim sýndu merki mæðiveiki, vel ættfærðar og stærstu systrahópar dætur Önguls 4 frá Ásgarði, Sál 25 frá Breiðumýri og Þráins 27 frá Kleifum.
Haustið 1949 var ásetningur á annan hátt en áður enda mun hafa legið fyrir ákvörðun um niðurskurð í allri sýslunni næsta haust, 1950, vegna útrýmingar mæðiveikinnar. Engin kind var keypt, aðeins settar á 72 gimbrar og hafði engin þeirra sýnt mæðiveikieinkenni haustið 1950. Ein hafði þá drepist vegna riðu og nokkrar aðrar týnt tölunni, flestar þeirra vegna þess að þær skiluðu sér ekki af fjalli. Langflestar íslensku ánna voru í tilrauninni um vöxt og þroska en stærstu hálfsystrahópar dætur Önguls 4 frá Ásgarði og Smára 32 frá Ólafsdal. Til viðbótar voru skotablendingar sem skiptust þannig að 6 voru Chevíótblendingar, 10 BLblóðs og 8 af Svarthöfðauppruna en blóðhluti erlenda kynsins allbreytilegur.