Laus staða: Deildarfulltrúi á kennsluskrifstofu
06.01.2026
Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir því að ráða deildarfulltrúa á kennsluskrifstofu skólans. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta og upplýsingagjöf til nemenda og kennara
- Samræming og samþætting kennslu í samvinnu við kennara
- Samstarf við utanaðkomandi aðila er tengjast kennslu og leiðbeiningu lokaverkefna
- Vinna við ýmis kerfi og gagnagrunna sem tengjast nemendabókhaldi, upplýsingamiðlun, framkvæmd kennslu, prófa og útskrift nemenda
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Haldgóð reynsla af verkefnastjórnun og upplýsingamiðlun
- Reynsla og þekking á notkun upplýsingakerfa og gagnagrunna
- Góð samskiptahæfni
- Góð kunnátta í ritaðri og talaðri íslensku sem og ensku
- Heiðarleiki og nákvæmni í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jón Grétar Sigurjónsson
Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 433 5000
Guðmunda Smáradóttir
Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 433 5000