Endurmenntunarnámskeið í dkBúbót
12.01.2026
Mynd sem tengist textanum

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands býður upp á hagnýtt námskeið í dkBúbót sem er hentar vel þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í bókhaldskerfinu sem og þeim sem vilja bæta verklag, auka skilvirkni og nýta kerfið betur. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu virkni og verkferla í dkBúbót. Nemendur fá hagnýta leiðsögn og tækifæri til að leysa verkefni í kerfinu.

Helstu þættir sem farið er yfir:

Uppsetning og grunnstillingar í DK Búbót

Skráning tekna og gjalda í búrekstri

Reikningagerð, virðisaukaskattur og skil

Laun og launavinnslur

Skýrslur og afstemmingar

Námskeiðið er haldið fiimmtudaginn 29. janúar kl. 13-17 og kennt á Teams. Áhersla er lögð á að þátttakendur öðlist færni til að nota kerfið sjálfstætt og aðlaga það að eigin rekstri.

Bókhaldsþekking er æskileg. Í boði er grunnnámskeið í bókhaldi á vegum Endurmenntunar LbhÍ sem haldið er 15.-21. janúar 2026.

Kennari er Ólafur Haukur Magnússon, M.Acc., aðjúnkt við Landbúnaðarháskóla Íslands. Ólafur Haukur hefur margra ára reynslu af fjármálum og rekstri og hefur lengi kennt námskeiðin Bókhald í búrekstri og Fjárhagsbókhald við LbhÍ.

Skráning og nánari upplýsingar á vef Endurmenntunar: dkBúbót | Endurmenntun