- Forsíða
- Fréttir
- DIGI-Rangeland | Net fyrir stafrænar nýjungar og gagnatækni í búfjárræktarkerfum á beitilandi

DIGI-Rangeland netverkið miðlar þekkingu um notkun stafrænnar tækni í búfjárrækt með sauðfé, nautgripi, geitur og önnur jórturdýr. Þáttökulönd eru 11, dreifð um Evrópu, verkefnið stendur yfir í 4 ár (2025-2028). Í brennidepli eru þrjú meginsvið þar sem talið er að stafræna tæknin geti komið að gagni:
Fóðrun, meðferð og meðhöndlun gripa, almenn bústjórn og rekstur.
Til að stuðla að meiri sátt og samvinnu um landnýtingu ólíkra hagsmunaaðila.
Vegna vöruþróunar og markaðssetningar afurða og þjónustu þessara framleiðslukerfa.
Spurningakönnun hefur verið í gangi í öllum þátttökulöndunum frá því í október, ætluð þeim sem vinna í beinum tengslum við búskap sem byggir á úthagabeit. Tilgangurinn með könnuninni er að skilja betur áskoranir, þarfir, tækifæri og hindranir tengt notkun stafrænna tæknilausna í búfjárrækt með jórturdýr. Niðurstöðunum er ætlað að leggja grunn að betri lausnum, fræðslu og stefnumótun á þessu sviði.
Könnunin verður opin fram í byrjun febrúar og athygli bænda hefur verið vakin á henni með ýmsum hætti og svörun er þegar töluverð. Ætlunin er að ná líka til fólks í tengdum störfum, þar á meðal við kennslu og rannsóknir sem tengjast búfjárrækt með jórturdýr með einum eða öðrum hætti.
Könnunin er:
Nafnlaus og öllum opin.
Tekur 15-25 mínútur að svara.
Mikilvæg undirstaða gagnasöfnunar í DIGI-Rangeland verkefninu – LbhÍ stýrir verkpakkanum sem hún heyrir undir.
Þannig sett upp að svara á miðað við afmarkað hlutverk.
Ef þú ert til dæmis bæði bóndi og rannsakandi/kennari, gætirðu svarað einu sinni sem bóndi og einu sinni sem rannsakandi/kennari.
Til að svara könnuninni smellið á meðfylgjandi hlekk:
https://lbhi25.limesurvey.net/589661?lang=is