Published material
Tilurð þessarar vefsíðu er verkefni sem nemendur í starfsmiðuðu meistaranámi við auðlindadeild LbhÍ unnu í námskeiði um fóðurræktun haustið 2007. Verkefnið fólst í því að gera eitt A4 blað fyrir hverja fóðurjurt sem mögulega finnst í íslensku ræktunarlandi. Á hverju blaði er stutt útlitslýsing ásamt kafla um nýtingu og uppskeruvæntingar og þar sem við á, kafli um ræktunaraðferðir. Síðurnar eru ríkulega myndskreyttar. Samtals er þetta 31 blað með 32 tegundum. Þetta eru bæði villtar og ræktaðar innfluttar tegundir. Listinn er ekki tæmandi enda eingöngu teknar fyrir tegundir af grasaætt, ertublómaætt og krossblómaætt. Vissulega stærstu og mikilvægustu ættkvíslir fóðurjurta en fyrir utan þær eru villtar tegundir í ræktunarlandi sem eiga heima í flokki með góðum fóðurjurtum en hafa þó ekki ræktunargildi. Tegundir eins og haugarfi, vallhumall, túnfífill, ætihvönn og ýmsar starir.
Á síðunum eru myndir úr myndasafni starfsmanna LbhÍ og myndir teknar af netinu. Reynt var að finna góðar teiknaðar útlitsmyndir af tegundunum og í flestum tilvikum tókst það. Annars var notast við ljósmyndir. Helsta uppspretta mynda af netinu voru síðurnar “Carl Axel Magnus Lindman: Bilder ur Nordens Flora (1901-1905)” og “USDA Plants Database” sem eru ómetanlegir gagnagrunnar fyrir svona verkefni ásamt frjálsri Wikipedia. Þessar heimildir sem og aðrar sem stuðst var við eru listaðar í sérstökum heimildarlista sem fylgir þessari síðu.
Höfundar eru Anna Lóa Sveinsdóttir, Guðfinna Harpa Árnadóttir, Helga María Hafþórsdóttir og Þóroddur Sveinsson.
Umsjón og ritstjórn; Þóroddur Sveinsson.
Sjá heimasíðu Fóðurjurtakversins
Villt fóðurgrös
Fjölært sáðgresi
Rit Lbhí nr. 188. Uppskera og ending ferlitna vallarrýgresis - áhrif yrkja og stofna ásamt sögulegu yfirliti
Þóroddur Sveinsson
Rit Lbhí nr. 196. Áhættu- og viðkvæmnismat fyrir mjókurframleiðslu á Íslandi
Torfi Jóhannesson
Rit Lbhí nr. 195. Samanburður á aðferðum við mat á loftslagsáhættu í íslenskum landbúnaði
Torfi Jóhannesson
Rit Lbhí nr. 194. Kjötmat lamba með lengdarmælingum
Jón Hjalti Eiríksson, Eyþór Einarsson og Óli Þór Hilmarsson
Rit LbhÍ nr. 189. Eignarhald á landbúnaðarlandi
Torfi Jóhannesson og Ásdís Hlökk Theodórsdóttir
Rit LbhÍ nr. 192. Iðragerjun íslenskra mjólkurkúa - Rannsókn á áhrifum blöndu ilmkjarnaolía (Agolin) á afurðamyndun og losun metans.
Jóhannes Kristjánsson, Gunnhildur Gísladóttir og Jóhannes Sveinbjörnsson
Rit LbhÍ nr. 191. Iðragerjun íslenskra mjólkurkúa - Rannsókn á áhrifum 3-NOP (Bovaer) á afurðamyndun og losun metans
Jóhannes Kristjánsson, Gunnhildur Gísladóttir og Jóhannes Sveinbjörnsson
Rit LbhÍ nr. 190. Iðragerjun íslenskra mjólkurkúa - Mælingar, spálíkön og uppfærsla loftslagsbókhalds.
Jóhannes Kristjánsson, Gunnhildur Gísladóttir og Jóhannes Sveinbjörnsson
Rit LbhÍ nr. 187. Í spor Sveins búfræðings og fyrsta skólastjóra á Hvanneyri
Bjarni Guðmundsson, prófessor emeritus
Butwin M.K., S. von Löwis, M.A. Pfeffer, P. Dagsson-Waldhauserova, J. Thorsson & T. Thorsteinsson. Influence of Weather Conditions on Particulate Matter Suspension following the 2010 Eyjafjallajökull Volcanic Eruption. Earth Interactions, doi: https://doi.org/10.1175/EI-D-20-0006.1
https://journals.ametsoc.org/ei/article/doi/10.1175/EI-D-20-0006.1/355188/Influence-of-Weather-Conditions-on-Particulate
Rit LbhÍ nr. 185 2025 Spretta og fóðurgildi helstu túngrasa á Íslandi
Höfundar: Guðni Þorvaldsson, Tryggvi Eiríkssonᵻ, Rúna Þrastardóttir og Bragi Líndal Ólafsson
Rit LbhÍ nr. 186 Gerlamengun í höfnum Faxaflóahafna. Niðurstöður vöktunar 2023-2024
Höfundar: Hlynur Óskarsson, Ragnhildur H. Jónsdóttir og Fanney Ó. Gísladóttir
Rit LbhÍ nr. 184 Kúabelgir: Uppskera og fóðurgildi einærra belgjurta
Höfundar: Helga Rún Jóhannsdóttir, Þóroddur Sveinsson og Friederike Dima Danneil
Rit LbhÍ nr. 183 Endurskoðun heildareinkunnar kynbótamats fyrir íslenskar mjólkurkýr
Höfundar: Jón Hjalti Eiríksson og Julie Clasen
Rit LbhÍ nr. 182 Erfðastuðlar staðalþunga og fæðingarþunga og erfðafylgni þeirra við skrokkeiginleika í íslensku fé
Höfundar: Jón Hjalti Eiríksson, Eyjólfur Kristinn Örnólfsson og Jóhannes Sveinbjörnsson
Rit LbhÍ nr. 181 Áhrif sláttutíma á uppskeru og endingu eftirsóttra túngrasa fyrir kúabú
Höfundur: Þóroddur Sveinsson
Rit LbhÍ nr. 180 Ræktun fyrir hagkvæmri lambakjötsframleiðslu
Höfundar: Jón Hjalti Eiríksson, Anna Guðrún Þórðardóttir, Þórdís Þórarinsdóttir, Jóhannes Sveinbjörnsson og Eyþór Einarsson
Rit LbhÍ nr. 179 Agriculture in Iceland: Conditions, Trends and Characteristics
Höfundur: Torfi Johannesson