Skeifudagurinn 2024

Hópurinn saman kominn í lok dags, Sunna Lind Sigurjónsdóttir, Lára Guðnadóttir, Heiðrún Hrund Sigurðardóttir, Hildur Ósk Þórsdóttir, Jessina Wallach, Jón Halldór Torfason og Bragi Geir Bjarnason

Skeifudagurinn haldinn hátíðlegur

Skeifudagurinn fór vel fram í blíðskaparveðri að Mið-Fossum í dag á Sumardaginn fyrsta að venju. Margt var um manninn og hófst dagskráin kl 13 með fánareið og opnunarávarp brautarstjóra Helga Eyleifs Þorvaldssonar. Um salinn riðu Guðbjartur Þór Stefánsson reiðkennari og Lára Guðnadóttir sem sat í söðli og þjóðbúning. Þá bættust í salinn allir nemendur sem tóku þátt í Skeifukeppninni þau Bragi Geir Bjarnason, Heiðrún Hrund Sigurðardóttir, Hildur Ósk Þórsdóttir, Jessinia Christine Wallach, Jón Halldór Torfason, Lára Guðnadóttir og Sunna Lind Sigurjónsdóttir. 

Að opnunaratriði loknu sýndu nemendur af fyrsta ári í hestafræði skrautreið um salinn áður en búfræðinemendur sýndu tamningatrippi sín og Guðbjartur fór yfir feril vetrarins. Þá riðu í salin feðginin frá Hemlu II Vignir Siggeirsson og Katrín Diljá Vignisdóttir en Katrín er í stjórn Grana. Jessina Wallach tók þá við og sýndi áhorfendum sína nálgun á þjálfun íslenska hestsins með alþjóðlegri aðferðafræði. Í lok dagskrár voru svo riðin úrslit í Gunnarsbikarnum. Að lokinni dagskrá í reiðhöllinni var kaffi og verðlaunaathöfn í hesthúsinu. 

Morgunblaðsskeifan

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson veitti Morgunblaðsskeifuna í ár en hana hlaut Sunna Lind Sigurjónsdóttir. í öðru sæti lenti Jessinia Wallach og Bragi Geir Bjarnason í þriðja.

Ásetuverðlaun Félags Tamningamanna

Jessinia Wallach

Eiðfaxabikar

Jessinia Wallach

Framfaraverðlaun Reynis

Heiðrún Hrund Sigurðardóttir og Jón Halldór Torfason


Við óskum öllum gleðilegs sumars og þökkum fyrir komuna í dag

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image