- Forsíða
- Fréttir
- Lektor í nytjajurtum við Landbúnaðarháskóla Íslands/Assistant professor in crop science at the Agricultural University of Iceland

Staða lektors í nytjajurtum við Landbúnaðarháskóla Íslands er laus til umsóknar. Möguleiki er á framgangi í stöðu dósents eða prófessors strax við ráðningu, uppfylli umsækjandi hæfniskröfur.
Rannsóknir við Landbúnaðarháskóla Íslands beinast að ræktun nytjajurta á norðlægum slóðum. Staðan er ætluð til að efla rannsóknir og menntun í íslenskri nytjajurtrækt.
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur stundað rannsóknir á ræktun og kynbótum á bæði grösum og korni í áratugi. Grös, aðallega vallarfoxgras og rýgresi, eru helstu nytjajurtir í íslenskum landbúnaði en mikil þörf er á að auka rannsóknir á ræktun og erfðafræði þessara grastegunda. Þá er kornrækt vaxandi atvinnugrein á Íslandi og mikil þörf á þekkingaruppbyggingu á því sviði.
Gert er ráð fyrir að sá sem ráðinn verði í starfið byggi upp rannsóknarhóp og leiði innlend og alþjóðleg rannsóknarverkefni. Gert er ráð fyrir að umsækjandi stundi rannsóknir á vallarfoxgrasi, rýgresi, korni eða öðrum nytjajurtum sem henta fyrir aðstæður á norðurslóðum og þarf að aðlaga að íslenskum aðstæðum með erfðafræði eða ræktunaraðferðum. Gert er ráð fyrir að umsækjandi kenni og leiðbeini nemendum í grunnnámi, meistaranámi og doktorsnámi.
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur aðstöðu til rannsókna á grösum, korni og öðrum nytjajurtum. Þar á meðal eru reyndir tæknimenn, tækjabúnaður, húsnæði, akrar og land fyrir tilraunir og háskólabú. Áform eru um að byggja jarðræktarmiðstöð í náinni framtíð við háskólann með nýrri aðstöðu til kennslu og rannsókna í jarðrækt og nytjurtarækt.
Um Landbúnaðarháskóla Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands (LBHÍ) er mennta- og rannsóknastofnun á sviði landbúnaðar, landnýtingar, umhverfisvísinda, skipulagsfræða og landslagsarkitektúrs. LBHÍ vinnur að sjálfbærri nýtingu auðlinda og hágæða landbúnaðarframleiðslu og leggur áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni í allri sinni starfsemi. LBHÍ veitir BSc-, MSc- og PhD-gráður og býður upp á starfsnám í landbúnaði.
Staðan er innan fagdeildar Lífs og lands. Deildin skapar og varðveitir þekkingu á landbúnaðarvísindum sem nær yfir líffræðilega, tæknilega, hagfræðilega og vistfræðilega þætti bæði dýra- og plöntuframleiðslu í norðlægu umhverfi Íslands.
///
The position of an Assistant Professor in crop science at the Agricultural University of Iceland is open for applications. There is a possibility of promotion to the position of Associate or Full Professor immediately, should the appointee fulfil the required qualifications.
Research at the Agricultural University of Iceland is concerned with crop production at northern latitudes. The position is intended to boost research and education in Icelandic crop production. The Agricultural University of Iceland has conducted agronomic and breeding research in both grasses and cereals for decades. Grasses, mostly timothy and ryegrass, are the major crop species in Icelandic agriculture but currently there is very limited research on the agronomy or genetics of these species while cereal production is a growing industry in Iceland. The successful candidate is expected to build a research group and establish and lead national and international research projects. The candidate is expected to conduct research in timothy, ryegrass, cereals or any other crops suitable for Sub-Arctic conditions that need to be adapted to Icelandic conditions through genetics or management. The candidate is expected to teach and mentor students at bachelors, master's and doctoral levels.
The Agricultural University of Iceland has facilities for research in grasses, cereals and other crops. This includes experienced technicians, equipment, housing, fields and land for trials, and a university farm. There are plans to build an agronomy center in the near future at the university with new facilities for teaching and research in agronomy and crop science.
About the Agricultural University of Iceland. The Agricultural University of Iceland (AUI) is an educational and research institution in the fields of agriculture, land resources, environmental sciences, urban and regional planning, and landscape architecture. The AUI works toward the sustainable use of resources, high-quality agricultural production, and emphasizes environmental protection and sustainability in all its activities. AUI awards BSc, MSc and PhD degrees and provides vocational training in agriculture.
The position is within the Faculty of Environmental and Agricultural Sciences. The faculty produces and preserves knowledge in agricultural sciences, encompassing biological, technical, economic and ecological aspects of both animal and plant-based production in the sub-arctic environment of Iceland.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Byggja upp og leiða alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir í nytjurtarækt fyrir íslenskar landbúnaðaraðstæður.
- Birta ritrýndar vísindagreinar og afla alþjóðlegra rannsóknarstyrkja í nytjurtarækt.
- Koma á fót og leiða alþjóðlegt og innlent rannsóknarsamstarf á sviði nytjurtaræktar.
- Kenna og þróa námskeið í grunn- og framhaldsnámi.
- Leiðbeina nemendum í bakklár, meistara- og doktorsnámi.
///
- Build and lead internationally acknowledged research in¿crop science for Icelandic agricultural conditions.
- Publish peer-reviewed scientific papers and raise international research grants in crop science.
- Establish and lead international and national research collaborations in the field of crop science.
- Teach and develop courses at undergraduate and post-graduate level¿.
- Supervise master's and Ph.D. students.
Hæfniskröfur
- Doktorspróf í nytjajurtrækt, helst með sérhæfingu í jarðrækt, erfðafræði og kynbótum plantna, lífeðlisfræði eða plöntusjúkdómafræði.
- Umsækjandi verður að hafa birt alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir.
- Kennslureynsla á háskólastigi.
- Skýr framtíðarsýn fyrir rannsóknir umsækjanda við háskólann.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp.
- Samstarfshæfni og félagsfærni.
- Hæfni til að vinna úti á vettvangi við norðlægar aðstæður.
///
Ph.D in crop science, preferably specialization in agronomy, plant genetics and breeding, physiology or plant pathology.
The applicant must have published internationally recognized research.
Teaching experience at university level.
A clear vision for the applicant `s research at the university.
Ability to work independently and as a part of a group.
Collaborative skills and social agility.
Ability to do field work in sub-arctic conditions.
Excellent proficiency in English and ability to learn Icelandic.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf, vottorð um menntun og starfsreynslu og ritaskrá.
Samkvæmt reglum Landbúnaðarháskóla Íslands er rektor heimilt að veita framgang í stöðu dósents eða prófessors strax í kjölfar nýráðningar, uppfylli umsækjandi hæfniskröfur.
Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Allir umsækjendur fá svar þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
///
The application shall include a CV, letter of introduction, certificates attesting to education and work experience, and a list of publications.
According to regulations of the Agricultural University of Iceland the rector is permitted to grant a promotion to the position of Associate or Full Professor immediately following a new recruitment, should the appointee fulfil required qualifications.
The Agricultural University of Iceland reserves its rights to reject all applications.
All applicants will receive an answer when a decision about the appointment has been made
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Eyjólfur Guðmundsson
Deildarforseti
Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 433 5000
Guðmunda Smáradóttir
Mannauðs- og gæðastjóri
Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 433 5000