Í tengslum við kennslu og rannsóknir í tengslum við hefðbundinn landbúnað hjá Landbúnaðarháskólanum er starfrækt við skólann s.k. Búrekstrarsvið, en á því sviði eru 8 starfsmenn sem vinna við ýmis bústörf og rannsóknir. Búrekstrarsviði tilheyra fjórar af sjö í eigu LbhÍ:
Hvanneyri (auk hluta Bárustaða)
Hestur
Mávahlíð
Þormóðsdalur
Auk þess tilheyra Búrekstrarsviði hlutar jarðanna Kirkjutungna, Bárustaða, Korpu og Reykja.Til viðbótar rekur Landbúnaðarháskólinn búið að
Möðruvöllum í Eyjafirði og á aðild að rekstri og rannsóknum á
Stóra-Ármóti á Suðurlandi. Þá er fer umtalsverð starfsemi skólans fram á jörðunum Korpu og Reykjum.
Meginþungi starfsemi Búrekstrarsviðs er rekstur blandaðs bús með bæði nautgripum og sauðfé, auk umtalsverðrar jarðræktar. Þá sinnir Búrekstrarsvið ýmsum verkum í verktöku fyrir aðra aðila s.s. þjónustu við Nautastöð Bændasamtaka Íslands, Stofnunga, Borgarbyggð og fleiri aðila. Heildarvelta sviðsins eru um 45-50 milljónir á ári.
Á hinu blandaða búi skólans fer m.a. fram verkleg kennsla og vinnubragðafræði fyrir búfræðinám sem tengist skepnuhaldi, hirðingu og húsvist auk þess sem verkleg kennsla búvísindanema í völdum fögum er einnig kennd s.s. nautgripa- og sauðfjárrækt, bútækni og byggingafræði. Auk þess er aðstaða í bæði fjárhúsinu og fjósinu til námskeiðahalds og fagfunda.
Skipulag ræktunar hjá Búrekstrarsviði LbhÍ sumarið 2007
Framleiðslumarkmið Kennslu- og rannsóknafjós LbhÍ
Kynbótamarkmið Kennslu- og rannsóknafjós LbhÍ